Herjað á Amazon með námuvinnslu og mannréttindabrotum

Gervitungla­myndir staðfesta umfangs­mikla ólöglega starfsemi í frið­löndum Amazon-frum­skógarins. Heimamenn vilja fá viður­kenn­ingu á náttúru­verndar­hlutverki sínu sem þeir sinna við erfiðar og oft og tíðum hættulegar aðstæður.

Námugröftur í Amazon verður sífellt umfangsmeiri.
Námu­gröftur í Amazon verður sífellt umfangs­meiri. Mynd: Green Peace

Búsvæði frum­byggja Amazon-frum­skógarins hafa löngum verið varnar­lína gegn eyðingu skógarins. Þær eru nú að bresta, m.a. í Brasilíu, að því er gögn gervi­tungla sem safnað hefur verið í tæpa fjóra áratugi sýna fram á.

Samkvæmt gögnunum er ólögleg námu­starfsemi á landi frum­byggja og á öðrum svæðum sem eiga að njóta verndar í lögum sífellt að aukast. Svo umfangs­mikil er starfsemin að hún hefur náð methæðum á síðustu árum þrátt fyrir ákall jafnt heima­manna sem alþjóða samfélagsins að standa vörð um Amazon, stærsta regnskóg jarðar.

Hin ólöglega starfsemi hefur aukist síðasta áratug en sérstak­lega mikið frá því að Jair Bolsonaro settist á forseta­stól í Brasilíu. Óttast er að orðræða hans og gjörðir hafi grafið undan bæði mann­réttindum og umhverfis­vernd. Með námu­vinnslunni er gróður á svæðinu fjar­lægður auk þess sem starfsemin mengar vatn, m.a. með kvika­silfri.

Vísinda­menn jafnt sem náttúru­verndar­hópar hafa varað við þeim breytingum sem átt hafa sér stað í Amazon í stjórnartíð Bolsonaro. Á þessum tíma hafa heimamenn, frumbyggjar skóganna og Brasilíu, oftsinnis orðið fyrir árásum þeirra sem standa að námu­greftrinum. Og þeir vilja aukna vernd fyrir sig og fjöl­skyldur sínar. Svæði frum­byggja njóta sérstakrar verndar samkvæmt lögum en engu að síður hefur Bolsonaro opinber­lega sagt að þar ætti að auka námu­vinnslu og aðra starfsemi.

„Þetta er alveg örugglega versta tímabil frum­byggja frá því að stjórnar­skráin var undir­rituð árið 1988,“ hefur tímaritið Nature eftir mann­fræðingnum Glenn Shepard sem starfar í Brasilíu.

Samkvæmt greiningu gervitungla­gagnanna hefur námu­vinnsla á verndar­svæðum frum­byggja á Amazon-svæðum Brasilíu fimm­faldast á einum áratug. Oftast er um að ræða gullgröft í smáum stíl en engu að síður með miklum umhverfis­áhrifum. „Við vissum eiginlega að þetta væri að gerast en að sjá tölurnar er ógnvekjandi,“ segir jarð­fræðingurinn Cesar Diniz, sem leiddi rannsókn MapBiomas á umfangi námu­vinnslunnar út frá gervitungla­myndum.

Eldri rann­sóknir hafa ítrekað sýnt að lönd frumbyggjanna virka eins og verndar­lína fyrir viðkvæmustu svæði regn­skóganna og þar með gegn skógar­eyðingu. Alþjóð­legu náttúru­verndar­samtökin IUCN hafa sett fram áætlanir í samstarfi við frum­byggja í Amazon um að tryggja að 80 prósent af regn­skóginum verði enn til staðar árið 2025. Heimamenn ætla að leiða þá vinnu, sem gera þarf í samstarfi við stjórn­völd í hverju ríki.

Þeir hafa þegar mætt andstöðu í Brasilíu. Samtök frum­byggja (APIB) hafa nú farið með mál sín fyrir Alþjóða glæpa­dómstólinn í Haag þar sem þau saka stjórn Bolsonaro um mann­réttinda­brot og um að ýta undir þjóðar­morð með því að grafa undan réttindum frumbyggjanna, grafa undan umhverfis­vernd og ýta undir árásir og ofbeldi með því að hvetja til frekari námu­vinnslu. Samtökin hafa einnig bent á að hin brotin séu ekki einkamál frum­byggja heldur allra jarðarbúa vegna mikil­vægis Amazon í lofts­laginu.

Luiz Eloy Terena, mann­fræðingur og lögfræðingur APIB, segir að besta leiðin til að bjarga regn­skóginum sé að vernda og styðja við byggðir frum­byggja á svæðinu. Bolsonaro sagðist í ræðu á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna í lok september „ákveðinn í því“ að vernda Amazon-skóginn og lagði áherslu á að um 600 þúsund manns lifðu þar í „frelsi“ á verndar­svæði sem væri um 14 prósent af Amazon-skógi Brasilíu. Hann hefur áður sagt að frumbyggjar hafi of mikið land til sinna nota.

Fyrr­verandi forseti Brasilíu, Luiz Inácio da Silva, kom á reglu­verki og aðgerða­áætlun við upphaf aldarinnar sem miðaði að vernd regn­skógarins. Markmiðin voru háleit og átti að draga úr skógar­eyðingu um 80 prósent á tæplega áratug. Spillingarmál þjökuðu Verkamanna­flokk da Silva og var hann sjálfur fangelsaður vegna slíkra ásakana. Skemmst er frá því að segja að hans stóru markmið í umhverfis­málum náðust ekki, m.a. vegna þess að árið 2012 veikti brasilíska þingið náttúru­verndar­lögin sem áttu að vernda Amazon. Í kjölfarið jókst skógar­eyðing, bæði vegna aukinnar námu­vinnslu, lands sem brotið var undir landbúnað og fleiri þátta. Stökk varð svo í eyðingunni eftir að Bolsonaro tók við völdum fyrir um tveimur árum. Meðal þess sem stjórn Bolsonaro ætlar sér er að breyta lögum svo að ekki sé hægt að stækka verndar­svæði frumbyggja­þjóða í Amazon.

„Við munum aldrei gefast upp,“ José Gregorio Diaz Mirabal sem fer fyrir einum stærstu náttúru­verndar­samtökunum sem efndu ítrekað til mótmæla í Brasilíu, höfuðborg Brasilíu, í ágúst og september. „Vísindin styðja okkar málstað og heimurinn er að vakna til vitundar.“

Aldrei fleiri varðmenn umhverfisins myrtir

Mirabal, sem er frá Venesúela og hefur barist fyrir vernd Amazon í fleiri ár, hefur ástæðu til að óttast mann­réttinda­brot stjórn­valda og hann og aðrir náttúru­verndar­sinnar hafa einnig ástæðu til að óttast um líf sitt.

Í fyrra voru 227 manneskjur sem börðust fyrir vernd náttúru og réttindum heima­manna, heimilum þeirra og lífs­viðurværi, drepnar vegna skoðana sinna og baráttu. Aldrei hafa fleiri náttúru­verndar­sinnar verið drepnir á einu ári, segir í skýrslu Gobal Witness sem fylgst hefur með gangi þessara mála í tæpan áratug. Þetta er í raun annað árið í röð þar sem morðum á aktivistum fjölgar milli ára. Um þriðjungur morðanna tengist baráttu fólks fyrir vernd náttúru­auðlinda í sínu næsta nágrenni, s.s. vernd fyrir skógar­höggi, námu­vinnslu, stórtækum land­búnaði og stíflu­mannvirkjum.

Í skýrslu Global Witness segir að frá því að skrifað var undir Parísarsátt­málann árið 2015, þar sem þjóðir heims ákváðu að leggja sig fram við að draga úr áhrifum loftslags­breytinga, hafi að meðaltali fjórir baráttu­menn nátt­úrunnar verið drepnir í hverri viku.

Ráðast til atlögu þar sem veikleikar eru fyrir

Langflest morðin eiga sér stað í fátækum löndum þar sem laga­umhverfið er viðkvæmt og oft fótum troðið fyrir tekjur af stórtækum framkvæmdum alþjóðlegra fyrir­tækja. Í fyrra voru flest morð á „varð­mönnum umhverfisins“, líkt og Global Witness kallar þennan hóp fólks, framin í Kólumbíu.

Fólk sem beitir sér fyrir umhverfis­vernd þarf oft að búa við hótanir, að vera undir eftirliti og að verða sakað um glæpi sem það framdi ekki. Þá verður það fyrir alvarlegum glæpum á borð við nauðganir.

Global Witness segir að fjöldi þeirra sem týnir lífi vegna náttúru­baráttu sinnar sé örugglega vanmetinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár