Vantar enn 645 milljónir til að Landspítalinn haldi sjó

Án frekari fjár­veitinga eru hagræðingar­aðgerðir á Land­spítalanum óumflýj­an­legar „sem ekki geta falist í öðru en samdrætti í mönnun og þar með þjónustu“.

Enn vantar 645 milljónir króna til rekstrar Land­spítalans á árinu 2018 til að starfsemin geti haldist óbreytt og hægt sé að sinna nauðsynlegri þjónustu við sjúklinga, meðal annars lágmarks­styrkingu á mönnun í hjúkrun. 

Þetta kemur fram í umsögn Land­spítalans um fjár­laga­frumvarp nýrrar ríkis­stjórnar sem barst fjár­laganefnd Alþingis í dag.

Eins og Stundin greindi frá á dögunum er nú gert ráð fyrir 3 milljörðum hærri fjár­framlögum til sjúkrahúss­þjónustu á næsta ári en til stóð samkvæmt fjár­laga­frumvarpi fyrri stjórnar.

Engu að síður telja stjórn­endur Land­spítalans að fjár­heimildirnar samkvæmt nýja frum­varpinu dugi skammt. 

„Nýtt fjár­laga­frumvarp gefur tilefni til nokkurrar bjartsýni hvað varðar fjár­veitingar til lögboðinnar heilbrigðis­þjónustu. Engu að síður er staðan sú að ef þetta frumvarp verður að lögum munu fjár­heimildir Land­spítala til rekstrar á árinu 2018 verða 1,8 milljörðum lægri á föstu verðlagi en árið 2008, þrátt fyrir verulega fjölgun og öldrun lands­manna svo og tilfærslu fjölmargra verkefna til sjúkra­hússins. Slík niður­staða kallar á hagræðingar­aðgerðir sem ekki geta falist í öðru en samdrætti í mönnun og þar með þjónustu,“ segir í umsögninni. 

Fram kemur að matið á fjár­vöntun byggist meðal annars á því að framhald verði á biðlista­átaki, 600 milljóna pottur vegna framleiðslu­tengdrar fjár­mögnunar nýtist Land­spítalanum að fullu og að sjúkra­hótel verði fjár­magnað sérstak­lega, en rekstrar­kostnaður þess á ársgrunni sé metið á 800 milljónir króna.

Auk þeirra 645 milljóna sem vantar til rekstrarins telur Land­spítalinn 1700 milljónir vanta til fjár­festingar og reksturs fasteigna og 405 milljónir til tækja­kaupa.

Bent er á að óvæntar en óumflýjanlegar framkvæmdir við endur­byggingu húsnæðis BUGL kalli á fjár­festingar­heimild upp á nálega 950 milljónir árið 2018. Þá vanti enn 500 milljónir til fyrsta áfanga breytinga á húsnæði geðdeilda við Hringbraut til að tryggja öryggi sjúklinga, 1200 milljónir í aðrar brýnar húsnæðis­framkvæmdir og 400 milljónir til tækja­kaupa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár