McCain fór aftur gegn Trump

John McCain lætur ekki valta yfir sig í þinginu.

John McCain, þingmaður Repúblikana úr Arizon ríki, segist ekki geta stutt breytingar sem Donald Trump Bandaríkja­forseti vill gera á lögum um heilbryggðistryggingar, en megin­inntak þeirra er að afnema hið svonefnda Obamacare, sem tryggir lágmarks­heilbrigðis­tryggingu fólks.

Þetta er í annað skipti á innan við þremur mánuðum sem McCain fer gegn vilja Trumps þegar kemur að heilbrigðis­tryggingum. Sjálfur hefur McCain sagt að hann sé ekki fylgjandi Obamacare og að það þarfnist endur­skoðunar, en hann telur vilja Trumps ekki vera réttu leiðina út úr þeirri stöðu sem nú er uppi.

McCain þurfti að taka sér frí frá störfum í Washington vegna heila­æxlis, en snéri til baka til starfa í sumar, og stöðvaði þá fyrra frumvarp sem átti að afnema Obamacare. Afstaða hans skiptir sköpum fyrir framgang málsins, en einnig hafa Lisa Murkowski og Susan Collins, úr röðum Repúblikana, staðið gegn því að vilji Trumps nái fram að ganga.

Gangi vilji Trumps eftir munu ríflega 20 milljónir manna missa lágmarks­heilbrigðis­tryggingu, með tilheyrandi kostnaðar­aukningu fyrir fólkið, en á sama tíma mun efnafólk fá verulega skatta­afslætti.

McCain segir í yfir­lýsingu að hann geti ekki stutt núverandi þingmanna­frumvarp, sem Bill Cassidy, frá Lousiana og Lindsey Graham frá Suður-Karólínu, hafa barist fyrir. Graham er nánasti banda­maður McCains úr röðum Repúblikana. Bill og Lindsey hafa talað fyrir því að nauðsynlegt sé að breyta núverandi kerfi, og að fyrir því muni þau berjast áfram.

McCain segist meðal annars ekki geta stutt málið vegna þess að hann telji að nánara samstarf milli Repúblikana og Demókrata þurfi að vera fyrir hendi, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times. Þá liggi heldur ekki fyrir hver kostnaðurinn verði af fyrr­nefndri breytingu, og greining á áhrifunum á einstaka hópa, sem munu missa tryggingu, liggi heldur ekki fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár