Býður Jóni Baldvini og Bryndísi að skila inn athugasemdum

Magnús Geir Þórð­ar­son svarar afar­kostum Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar og Bryn­dísar Schram og segir umfjöllun RÚV hafa verið vand­aða. Jón bald­vin skrifar grein­ina „Til varnar femín­isma“.

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri segir umfjöllun RÚV um mál Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar hafa verið vand­aða og hafa ótví­rætt frétta­gildi. Ekkert bendi til ann­ars en að vinnu­reglur og siða­reglur RÚV hafi verið virtar.

Í grein í Morg­un­blað­inu í dag svarar Magnús afar­kostum sem Jón Baldvin og eig­in­kona hans Bryndís Schram settu í blað­inu í fyrra­dag. Sögðust þau mundu stefna útvarps­stjóra ef hann bæð­ist ekki afsök­unar á frétta­flutn­ingnum innan viku og drægi til baka frétta­flutn­ing. Þá vildu þau að frétta­menn­irnir Helgi Seljan og Sigmar Guð­munds­son úr Morg­un­út­varpi Rásar 2 yrðu áminntir.

Sjö konur hafa stigið fram undir nafni og sakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­legra áreitni. Alls hafa 23 konur birt sögur sínar á vef­síðu og halda frá­sagnir áfram að ber­ast í sér­stökum MeToo hópi kvenn­anna á Facebook. Jón Baldvin hefur ítrekað sagt að sög­urnar eigi allar rætur að rekja til veik­inda dóttur sinnar, Aldísar Schram, sem kom til við­tals í Morg­un­út­varpið.

Í grein sinni segir Magnús að með umfjöll­un­inni hafi RÚV sinnt hlut­verki sínu og skyldum. „Ef ein­hver er ósáttur við til­tekin atriði í frétta­flutn­ingi tekur RÚV fús­lega við athug­semdum og svarar með form­legum hætti,“ skrifar hann. „Ef við­kom­andi er ósáttur við þá afgreiðslu sem hann fær er hægt að beina mál­inu til sér­stakrar siða­nefndar sem leggur sjálf­stætt mat á fram­göngu starfs­manna RÚV en að auki má benda á að allir geta skotið málum til Blaða­manna­fé­lags Íslands. Ef Jón Baldvin og Bryndís telja á sig hallað hvet ég þau til að beina málum í þennan form­lega far­veg sem er til staðar fyrir þau eins og aðra.“

Í Frétta­blað­inu í dag svarar Helgi Seljan einnig fyrir umfjöllun RÚV. „Það er alveg sama hversu marga dálksenti­metra Jón Baldvin Hanni­bals­son tekur undir þessar greinar sínar og hversu oft hann birtir þær, það er bara einn maður sem hefur orðið upp­vís að því að halla réttu máli í sínum mál­flutn­ingi vegna þessa alls og það ítrekað,“ sagði Helgi.

Þá birti Frétta­blaðið í dag grein eftir Jón Baldvin með tit­il­inn „Til varnar femín­isma“. Í grein­inni rekur hann mál Steven Galloway, kanadísks rit­höf­undar, sem rek­inn var frá Uni­versity of British Columbia eftir ásak­anir um kyn­ferð­is­of­beldi. „Þetta mál hefur klofið #metoohreyfinguna og akademíska sam­fé­lagið í Kanada í tvær and­stæðar fylk­ingar,“ skrifar Jón Baldvin. „Með eða móti rétt­ar­rík­inu. Málið er orðið hápóli­tískt. Það snýst ekki bara um kven­rétt­indi. Það snýst um mann­rétt­indi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár