Var verjandi Bjarka og gagnrýndi dóm yfir Ólafi – stýrir nú þingnefndinni sem fjallar um fléttuna þeirra

Brynjar Níelsson stýrir þing­nefndinni sem tekur fyrir rann­sóknar­skýrslu Alþingis um viðskipta­fléttu Ólafs Ólafs­sonar og Bjarka Diego. Brynjar er fyrr­verandi verjandi Bjarka og hefur ítrekað tjáð sig um málefni Ólafs vegna Al-Thani málsins.

Brynjar Níelsson, formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar, flutti munnlega skýrslu á Alþingi í dag um skýrslu rann­sóknar­nefndar Alþingis um þátttöku Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA í einka­væðingu Búnaðar­bankans árið 2003.

Athygli vakti að Brynjar vildi ekki slá því föstu, líkt og rann­sóknar­nefndin gerir, að blekkingum hefði verið beitt við einka­væðinguna á Búnaðar­bankanum. „Ég ætla ekki að hafa skoðun á því hvort stjórn­völd hafi verið blekkt,“ sagði Brynjar. 

Í þingræðu sinni tók Brynjar ekki fram að sem lögmaður gegndi hann verjenda­störfum fyrir Bjarka Diego eftir hrun, en Bjarki er einn þeirra sem spiluðu lykil­hlutverk í gerð leynilegra baksamninga þegar Ólafur Ólafsson og fleiri keyptu Búnaðar­bankann 2003 samkvæmt skýrslu rann­sóknar­nefndar Alþingis.

Bjarki kemur talsvert við sögu í skýrslunni en að því er fram kemur í frétt RÚV af málinu telur Brynjar að þetta skipti engu fyrir störf sín á þingi. Stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd mun fjalla um rann­sóknar­skýrsluna og ákveða hver …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár