Landsframleiðsla Íslands jókst um 8,6 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 borið saman við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands sem birtir voru í dag. Hagvöxtur mældist 4,3 prósent allt árið í fyrra eftir 7,1 próent samdrátt á árinu 2020.
Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að þjóðarútgjöld hafi aukist um 11,2 prósent að raungildi, einkaneysla um 8,8 prósent, samneysla um 1,5 prósent og fjármunamyndun um 20,3 prósent.
Sú mikla aukning sem er í einkaneyslu skýrist að umtalsverðu leyti af auknum ferðalögum og neysluútgjöldum Íslendinga erlendis á fyrsta ársfjórðungi 2022, eftir að takmörkunum sem settar voru á ferðalög vegna kórónuveirufaraldursins var aflétt. Þá mældist einnig umtalsverð aukning í kaupum heimila á nýjum bílum á tímabilinu en samdráttur varð í kaupum á áfengi, húsbúnaði og innréttingum.
Í umfjöllun Hagstofunnar segir að aukning í þjónustuviðskiptum við útlönd, sem er aðallega vegna mikillar fjölgunar á komu ferðamanna hingað til lands, sé söguleg. Alls jókst útflutt þjónusta um 80,8 prósent borið saman við fyrstu þrjá mánuði ársins í fyrra þegar ferðaþjónustan var í lamasessi vegna faraldursins. Alls fóru 245 þúsund erlendir farþegar um Keflavíkurflugvöll nú samanborið við tæplega tólf þúsund á sama tímabili 2021.
Á móti jókst þjónustuútflutningur um 68,7 prósent, sem skýrist aftur af auknum ferðalögum Íslendinga erlendis „Vöxtur í inn- og útflutningi þjónustu hefur ekki mælst meiri frá því að ársfjórðungslegar mælingar landsframleiðslu hófust hér á landi,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar.
Vöruútflutningur jókst um 8,9 prósent milli ára en vöruinnflutningur mun meira, eða um 21,4 prósent. Samanlagður halli af vöru- og þjónustuviðskiptum er því áætlaður 25,4 milljarðar króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þar af er halli af vöruviðskiptum 20 milljarðar króna en hall af þjónustuviðskiptum 5,4 milljarðar króna. Vert er að taka fram að háannatími í ferðaþjónustu er á öðrum og þriðja ársfjórðungi ársins og því má búast við að þjónustuútflutningur skili mun fleiri milljörðum króna í þjóðarkassann á því tímabili en hann gerði á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Starfandi fjölgaði um 8,2 prósent
Heildarfjármunaeign jókst um 20,3 prósent á fyrsta ársfjórðungi. Í umfjöllun Hagstofunnar segir að þar hafi mest munað um aukna fjármunamyndun atvinnuvega, sem mældist 38,3 prósent, en án fjárfestinga í skipum, flugvélum og stóriðjutengdri starfsemi mældist vöxturinn 19,4 prósent. „Skýrist munurinn einkum af umtalsverðum fjárfestingum í flugvélum á tímabilinu en samdráttur mældist í fjármunamyndun stóriðju og tengdra greina borið saman við sama tímabil fyrra árs. Inn- og útflutningur skipa og flugvéla kemur með beinum hætti fram í fjárfestingu ýmist til hækkunar eða lækkunar. Þessi stærð skiptir oft sköpum varðandi heildarfjárhæðir í fjárfestingu og utanríkisviðskiptum en áhrif á landsframleiðslu eru aftur á móti minniháttar þar sem fjárfestingaráhrifin vega á móti áhrifum á utanríkisviðskipti.“
Áætlað er að fjármunamyndun í íbúðarhúsnæði hafi numið um 40,8 milljörðum króna á tímabilinu og hafi dregist saman um 6,8 prósent að raungildi borið saman við fyrsta ársfjórðung 2021. Áætlað er að fjármunamyndun hins opinbera hafi aukist um 1,4 prósent að raungildi á sama tímabili.
Atvinna hélt áfram að aukast á fyrsta ársfjórðungi samhliða því að efnahagslífið tók við sér þegar takmörkunum vegna faraldursins var aflétt. Áætlað er að heildarfjöldi unnina stunda hafi aukist um 7,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi en þeim hefur fjölgað á hverjum ársfjórðungi frá því í lok mars í fyrra. Starfandi einstaklingum fjölgaði um 8,2 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins borið saman við sama tímabil 2021. Skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun var 4,5 prósent í aprílmánuði. Almennt atvinnuleysi í faraldrinum mældist mest í janúar 2021, 11,6 prósent, og heildaratvinnuleysi að meðtöldum þeim sem enn voru á hlutabótum í þeim mánuði var 12,8 prósent.
Mestur var samdrátturinn á öðrum ársfjórðungi 2020 þegar fjöldi vinnustunda dróst saman um 11,3 prósent fyrstu mánuðina eftir að faraldurinn skall á.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir