„Undirmönnun, fjársvelti og orðrómur um einkavæðingu“

Aljazeera fjallar um íslenska heilbrigðis­kerfið – Skrif­stofustjóri Velferðar­ráðuneytisins segir ekkert benda til hnignunar

Hjúkrunar­fræðingar óttast að íslenska heilbrigðis­kerfið muni smám saman líkjast æ meira því bandaríska og verða einka­væðingu að bráð. Þetta kemur fram í frétta­skýringu Aljazeera um íslenska heilbrigðis­kerfið, en umfjöllunin byggir á samtölum blaða­mannsins Ned Resnikoff við heilbrigðis­starfsmenn hérlendis. Í undir­fyrirsögn er fullyrt að „undir­mönnun, fjár­svelti og orðrómar um einka­væðingu“ geri starfs­mönnum sjúkra­húsanna lífið leitt. 

Haft er eftir Sveini Magnússyni, skrif­stofustjóra í velferðar­ráðuneytinu, að engir vísar bendi til þess að hnignun í heilbrigðis­kerfinu sé að eiga sér stað. Þetta er athyglis­vert í ljósi þess hve gríðar­lega hefur verið skorið niður til heilbrigðis­mála eftir hrun. Bent er á það í umfjöllun Aljazeera að fjár­veitingar til Land­spítalans drógust saman um nánast helming milli 2007 og 2009. Niður­skurðurinn hafi bitnað verulega á launa­kjörum heilbrigðis­starfsfólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár