Velur hreinna fæði eftir að líkaminn gaf sig

Margrét R Jónasar­dóttir þurfti að endur­skoða mataræðið þegar ónæmis­kerfið hrundi í kjölfar þess að hún brann út í vinnu. Ástríðan fyrir matargerð er þó hvergi horfin, en nú er mataræðið jafnvel enn hollara og betra en áður.

Margrét R. Jónasar­dóttir er ástríðu­kokkur, með óþrjótandi áhuga á heilsu og mataræði. Hún borðar helst hollan mat og les innihalds­lýsingar á matvælum til að sneiða hjá óhollustu. Áhugi hennar á matargerð hefur alltaf fylgt henni og í gegnum tíðina hefur hún verið fljót að tileinka sér nýjungar og heldur úti vinsælu matar­snappi, undir nafninu margretrj.

Gleðin í eldhúsinu
Gleðin í eldhúsinu Margrét veit fátt skemmtilegra en að elda og hefur húmorinn með sér.

Á árinu hefur hún hins vegar þurft að gera miklar breytingar á matar­æðinu sem má rekja til þess að hún vann yfir sig fyrir nokkrum árum með þeim afleiðingum að ónæmis­kerfið veiktist og hún greindist með skjald­kirtils­sjúkdóm. „Í kjölfarið fór ég enn betur í gegnum mataræðið og leitaði leiða til þess að styrkja ónæmis­kerfið og lækna skjald­kirtilinn. Til þess tók ég út allt glúten og allar mjólkur­vörur,“ segir Margrét. „Það er áskorun því ég þarf að hugsa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár