Brynjar: Fólk sem á bíl getur ekki verið fátækt

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, blandar sér í umræðuna um vegtolla og segir að fólk sem keyrir um á bíl geti ekki talist fátækt.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, telur að eigendur bifreiða geti ekki talist fátækir. 

Þetta kemur fram í umræðum sem Brynjar tekur þátt í á Facebook, en tilefnið er gagnrýni Sigurðar Hólm Gunnars­sonar, iðju­þjálfa og forstöðu­manns á skammtíma­heimili fyrir unglinga í Reykjavík, á áform samgöngu­ráðherra um að leggja vegtolla á ökumenn. „Þegar samgöngu­ráðherra Sjálfstæðis­flokksins leggur til skatta­hækkun á landsmenn (sem hann kallar vegatolla) er það auðvitað FLATUR skattur. Skattur sem leggst jafnt á ríka sem fátæka,“ skrifar Sigurður. 

Brynjar bregst við með þeim orðum að fátækir geti hvorki átt bíl né rekið. „Þú ert ekki fátækur ef þú átt bíl og getur rekið hann,“ skrifar Brynjar og segir málið snúast um skilgreiningu á fátækt. „Ríkur maður getur ákveðið að eiga ekki bíl. En sá sem ákveður að eyða fé sínu í bíl getur ekki talist fátækur.“ 

Athygli vakti í fyrra þegar Brynjar hæddist að hugmyndum um að tann­lækningar og sálfræði­þjónusta yrði aðgengileg öllum lands­mönnum óháð efnahag. Sagði Brynjar að Píratar vildu að iðju­leysingjar gætu „setið heima við tölvuna á borgara­launum, legið í sófanum hjá sálfræðingum daginn út og inn og látið hvítta tennurnar, allt í boði skatt­greiðenda“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár