28 virkum dögum seinna

Vaxandi hópur Bandaríkja­manna tekur þátt í mótmælum gegn samkomu­banni og öðrum fyrir­byggjandi aðgerðum vegna kóróna­veirunnar. Þeir virðast njóta stuðnings Donalds Trump forseta og er hann sakaður um að hvetja til uppreisnar í ríkjum þar sem Demó­kratar eru við völd. Trump er mikið í mun að koma hagkerfinu aftur í gang fyrir komandi kosninga­baráttu, þrátt fyrir gríðarlegt og hratt vaxandi mannfall af völdum veirunnar vestanhafs.

Mótmælendur
Mót­mæl­endur Flestir mót­mæl­endur gegn sam­komu­bann­inu eru gall­harðir stuðn­ings­menn for­set­ans og vitna í orð hans um að með­alið ætti aldrei að vera verra en sjúk­dóm­ur­inn. Mynd: afp

Ekkert land hefur orðið jafn illa fyrir barðinu á COVID-19 og Banda­ríkin. Þegar þetta er skrifað eru staðfest tilfelli komin vel yfir 800 þúsund (margfalt fleiri en í nokkru öðru landi) og dauðsföll minnst 45 þúsund, sem einnig er mun hærri tala en við sjáum í öðrum löndum. Þrátt fyrir það hafa þúsundir Bandaríkja­manna í minnst tólf ríkjum tekið þátt í mótmælum gegn fyrir­mælum sóttvarna­yfirvalda um samgöngu­bann og aðrar takmarkanir til að hefta útbreiðslu sjúk­dómsins. 

Í Michigan, Texas, Ohio og mörgum öðrum ríkjum hafa hópar skipulagt mótmæla­aðgerðir til að krefjast þess að verslanir, kirkjur og aðrir fjöl­farnir staðir verði opnaðir á ný. Auk þess að koma saman fyrir utan opinberar byggingar hafa aðrir notað ökutæki sín til að reyna að stöðva umferð og jafnvel eru dæmi um að þeir hafi heft för sjúkra­bíla og annarrar neyðar­þjónustu til að koma skila­boðum sínum á framfæri. Þegar forseti Banda­ríkjanna var spurður hvort …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár