Sykurleysi og aðrar matartískudellur

Nanna Rögnvaldar skrifar um nýjustu delluna í mataræði. „Við erum alltaf að leita að skyndi­lausnum eða töfra­lausnum - einhverju einföldu sem virkar.“

Tísku­dellur hafa verið mjög áberandi í matar­heiminum síðustu árin. Nú ætla ég að taka fram að ég nota orðið della ekki í neikvæðri merkingu, dellur geta alveg verið jákvæðar og skynsamlegar, það vantar ekki. Og ég fæ dellur rétt eins og aðrir.
Sumar dellur – eða trend, ef þið viljið það frekar – hafa snúist um hráefni sem einn daginn er óþekkt, lítið þekkt eða þykir ekki sérlega fínt en allt í einu getur maður varla opnað blað eða nýja matreiðslubók eða skoðað blogg svo að þetta blasi ekki við í öðrum hverjum rétti. Sól­þurrkaðir tómatar, hindberja­edik, kletta­salat, beikon, blómkál, granateplafræ ... Stundum eru þetta tilteknir réttir eða tegundir rétta sem allir eru með sína útgáfu af, flestar þó hver annarri líkar – bolla­kökur, döðlugott, köku­pinnar, mexíkósk kjúklinga­súpa – og maður situr og hugsar bíddu, þurfum við virkilega enn eina uppskrift að ristuðum grænkáls­flögum, eru þessar 350 sem hægt er að finna á netinu í fljótu bragði ekki nóg? Og jú, ég er alveg jafnsek um þetta og aðrir þótt ég hafi reyndar aldrei birt uppskrift að ristuðum grænkáls­flögum. Það munaði þó litlu einu sinni.

Svo eru það allar hollustu­dellurnar. Við erum alltaf að leita að skyndi­lausnum eða töfra­lausnum – einhverju einföldu sem virkar. Eins og að sleppa tilteknum þáttum úr matar­æðinu eða takmarka notkun þeirra – sem getur alveg virkað – eða setja allt traust á einhverjar hráefnis­tegundir sem hafa á sér hollustu­stimpil og trúa því að ef við notum þær muni þær bjarga öllu – en það virkar ekki. Fyrir fáeinum árum var eins og það dygði að hafa spelt, agavesíróp eða vínsteins­lyftiduft í köku­uppskrift, þar með mátti kalla kökuna holla, sama hvað annað var í henni. Svo kom í ljós að speltið var lítið eða ekkert hollara en annað hveiti og agavesír­ópið gat jafnvel verið verra en hvíti sykurinn. Vínsteins­lyftiduftið átti að vera svo hollt af því að það innihélt ekki álsambönd en það gerir íslenskt lyftiduft reyndar ekki heldur. Svo að einhvernveginn hefur uppskriftum sem snúast um þessi hráefni heldur fækkað að undan­förnu. Auðvitað hefur annað komið í staðinn en spurning hvort það á eftir að fara sömu leið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár