„Þið teljið að þið séuð ekki nasistar af því þið eruð góða fólkið“

Áslaug María Friðriks­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, bar vinnu­brögð borgar­stjórnar­meirihlutans saman við kynþátta­mismunun nasista á borgar­stjórnar­fundi í kvöld. Kallað var eftir afsögn borgar­stjóra og stór orð höfð uppi um skaðann sem ákvörðunin í síðustu viku hefði valdið.

Auka­fundur borgar­stjórnar vegna tillögu um að draga til baka samþykkt um sniðgöngu á ísraelskum vörum fór fram í Ráðhúsinu í kvöld. Stundin fjallaði um málið eftir því sem umræðunum vatt fram.

Kl. 13:20, 23. sept

Áslaug hefur beðist afsökunar á ummælum sínum. Á Facebook-síðu sinni skrifar hún:

„Á borgar­stjórnar­fundi í gær fjallaði ég um alvarleika þess viðhorfs að telja sig æðri lögum í skjóli þess að um góðan málstað væri að ræða. Tilefnið var að ég taldi ákveðna borgar­fulltrúa meirihlutans ekki skilja hversu hættulegt fordæmi væri þar með sett. Ekki væri alltaf öruggt að gott fólk væri við stjórn og tók ég í kjölfarið svo til orða að fordæmið yrði sérstak­lega slæmt ef til dæmis nasistar kæmust til valda. Þeir gætu þá í skjóli þess að þeir trúðu á ákveðinn málstað virt lög að vettugi eins og borgar­stjórn­armeirit­hlutinn gerði fyrir viku. Ég var ekki að líkja meirihlutanum við nasista en það hefur misskilist og það þykir mér mjög leitt. Ég vil því biðjast afsökunar á því að hafa ekki valið orð mín af meiri kostgæfni og vandað betur til máls míns.“

Kl. 00:45

Áslaug Friðriks­dóttir tjáir sig á Facebook og segist vilja kom því skýrt á framfæri að hún hafi ekki verið að kalla fulltrúa meirihlutans nasista. „Ég notaði nasistana sem dæmi um af hverju virðing fyrir lögum og reglu skiptir máli. Lög eru ekki til þess að vera bara stíf og leiðinleg og koma í veg fyrir falleg mál. Þau eru öryggis­ventill – einmitt sett til að gera vondu fólki erfiðara fyrir ef það kemst til valda,“ skrifar Áslaug og bætir við: „Ef nasistar næðu meirihlutanum í borgar­stjórn myndu sömu lög – og meirihlutinn nú ber enga virðingu fyrir og vill helst virða að vettugi - bjarga því að þeir gætu tekið allskonar ógeð­felldar ákvarðanir þrátt fyrir að hafa völdin. Það er mikil vanvirðing að bera ekki virðingu fyrir því hlutverki laga og reglna að halda að þau eigi alltaf bara við um ákvarðanir annarra, en ekki sinna eigin.“

Kl. 21:27, 22. sept

Borgar­stjórn hefur nú samþykkt með atkvæðum allra fimmtán borgar­fulltrúa að fella úr gildi samþykkt borgar­stjórnar frá því í síðustu viku um sniðgöngu á ísraelskum vörumum. Var fundi slitið kl. 21:20.

Kl. 20:30

„Við erum í alþjóð­legu samhengi rasistar. Ykkur er sama um það,“ sagði Áslaug Friðriks­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins í ræðu sinni rétt í þessu, nefndi að íslenskar vörur hefðu verið teknar úr búðum og vitnaði til yfir­lýsingar Simon Wiesentahl-stofnunarinnar þar sem gyðingar eru hvattir til að fara ekki til Íslands. „Það skiptir ekki máli þótt ykkur finnist þið vera ofboðs­legir mann­réttinda­frömuðir,“ sagði hún og fullyrti að samþykkt borgar­stjórnar­meirihlutans hefði verið andstæð lögum og haft slæmar afleiðingar. „Ykkur er í raun og veru alveg nákvæmlega sama, þið takið þetta ekki alvarlega og þið eruð meira að segja farin að fabúlera um það að skaðinn sé nánast enginn. Algjör­lega óskiljanlegt og mér finnst þetta bara ekki siðað.“

„Þið gerið það í krafti þess
að þið séuð góða fólkið“

Hún sagði að borgar­stjórnar­meirihlutinn virðist hafa talið sig æðri lögum. „Þið tölduð ykkur æðri lögunum og mér finnst það svo alvarlegt brot að þið hljótið að vera að íhuga afsögn.“ Sagði hún meirihlutann ganga fram „með hegðun sem ég held að ekkert okkar vilji sjá. En þið gerið það í krafti þess að þið séuð góða fólkið“. Þá nefndi hún dæmi úr sögunni:

„Segjum að nasistar kæmust hér við völd og ákvæðu að setja einhvers konar bann á hluti, fara í gegnum innkaupa­stefnuna og segja: 'þetta hérna, þetta er einhvern veginn þannig að við teljum að hér sé verið að brjóta á fólki og lalala'... þið eruð í rauninni að gera þetta nema að þið teljið að þið séuð ekki nasistar af því þið eruð góða fólkið“.

Kl. 20:27

„Framganga ykkar í minni­hlutanum undan­farnar vikur hefur einkennst af pólitískum subbuskap þegar þið hafið þjösnast áfram og kallað eftir afsögn borgar­stjóra,“ sagði Magnús Már Guðmundsson, borgar­fulltrúi Samfykingarinnar. Gagnrýndi hann sjálfstæðis­menn fyrir að hafa ekki lagst af meiri hörku gegn tillög­unni þegar rætt var um hana á borgar­stjórnar­fundi í síðustu viku. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðis­flokksins, furðaði sig á þessum málflutningi og sagði borgar­stjórnar­meirihlutann láta eins og sitt eigið klúður væri minni­hlutanum að kenna.

Kl. 20:07

„Baráttan fyrir mann­réttindum er ekki einföld,“ sagði Heiða Björg Hilmis­dóttir, borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar, í ræðu sinni. Sagði hún tillöguna hafa verið illa orðaða og því yrði að draga hana til baka. „Við erum ekki að draga til baka erindi hennar, sem er að standa upp fyrir mann­réttindum fólks,“ sagði hún þó einnig. Heiða benti á að þótt samþykkt borgar­stjórnar yrði tekin til baka útilokaði það ekki að borgin ákvæði að sniðganga vörur í fram­tíðinni vegna mann­réttinda­sjónarmiða.

Kl. 20:02

„Að þekkja og virða sín valdamörk eru eitt af mikil­vægustu verkefnum stjórn­málanna,“ segir Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata í borgar­stjórn. „Við hugsuðum ekki nógu vel um afleiðingarnar.“ Halldór segir drög að tillögu Bjarkar hafa legið fyrir í borginni í nokkurn tíma en tillagan þó verið lögð fram með of skömmum fyrirvara. „Þannig að ég tel fulla ástæðu til að biðjast afsökunar á því að hafa farið fram úr sjálfum mér og beitt valdi mínu á óábyrgan hátt. Ég geri það hér með,“ sagði Halldór og bætti við: „Vegurinn til heljar er því miður oft varðaður góðum áformum. Áformin voru nefnilega ekki vond - þau snerust um að vekja athygli á hernámi Ísraels­manna á landsvæðum Palestínu­manna og þrýsta á um að látið yrði af því. Mér finnst þessi málstaður hafa dálítið gleymst í umræðunni um tillöguna og afleiðingar hennar og vonandi gefast færi á að ræða áfram hvernig halda má honum og öðrum góðum og mikil­vægum málstöðum á lofti.“

Kl. 19:55

Ítrekað hefur verið minnst á bréf Höskuldar Ólafs­sonar, banka­stjóra Arion banka, til Dags B. Eggerts­sonar borgar­stjóra í kvöld, en eins og fram hefur komið áfram­sendi banka­stjórinn Degi bréf frá Eggerti Dagbjarts­syni, einum af þeim fjár­festum sem koma að byggingu Marriott-hótels við Hörpu, sem lýst hafði áhyggjum af viðbrögðum við ákvörðun borgar­stjórnar. Dagur vísar því á bug að þetta bréf eitt og sér hafi valdið því að hann ákvað að draga til baka tillögu borgar­stjórnar um að sniðganga ísraelskar vörur.

Kl. 19:50

„Ég vona að borgar­fulltrúar hafi ekki hér verið að hvetja aðila til að krefjast skaðabóta af borginni vegna afleidds tjóns," sagði Björn Blöndal, oddviti Bjartrar framtíðar í ræðu sinni. Sagði hann kröfu um afsögn borgar­stjóra „einhvers konar yfirspil“. Þá spurði Björn hvort borgar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins væru að veita meirihlutanum aðhald eða að reyna að valda pólitískum skaða. Hann viðurkenndi að ekki hefði verið staðið nægilega vel að samþykkt borgar­stjórnar í síðustu viku. 

Kl. 19:16

Skúli Helgason, borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar, ræddi um mikilvægi þess að barist sé fyrir mann­réttindum með ýmsum hætti. Borgin ætti ekki að láta sitt eftir liggja. Hann sagði virðingar­vert af Degi B. Sigurðs­syni að hafa beðist afsökunar á samþykkt borgarinnar. Fráleitt og fjarstæðu­kennt væri að krefja borgar­stjóra um afsögn vegna tillögu sem dregin hefði verið til baka. 

Kl. 19:08

Hjálmar Sveinsson, borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar, sakaði Kjartan Magnússon um að reyna að grafa undan farsælum og vinsælum borgar­stjóra. Þá sagði hann ræðu Kjartans ómálefnalega og óskýra og farið hefði verið úr einu í annað. Ræða Kjartans hafi haft „móðursýkislegt yfirbragð“. Kjartan svaraði þessu, furðaði sig á orðum Hjálmars og sagðist aldrei sjálfur hafa viðhaft slík ummæli um þá sem eru honum ósammála í pólitík. 

Kl. 19:05

Kjartan Magnússon, borgar­fulltrúi Reykja­víkurborgar, kallar eftir því að lögfræði­álit borgarinnar á samþykkt borgar­stjórnar um að sniðganga ísraelskar vörur verði gert opinbert. Hann segir að erfitt sé að meta þann skaða sem ákvörðunin hafi valdið. Þá veltir Kjartan því fyrir sér hvort umræða undan­farna daga hafi ef til vill skaðað umræðuna um mann­réttindi á Íslandi. Umræðan hafi harðnað og orðið ómálefnalegri og með samþykkt borgarinnar hafi gyðinga­hatur fengið frjóan farveg.

Kl. 18:53

Magnús Már Guðmundsson, borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar, spurði Sveinbjörgu Birnu hvort hún styddi að mann­réttinda­sjónarmiðum væri fylgt í innkaupa­stefnu borgarinnar og hvort hún styddi Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Svein­björg svaraði fyrri spurningunni játandi en vildi ekki svara þeirri síðari. „Ég ætla aftur á móti ekki að fara út í það að láta stilla mér hérna upp við vegg að láta mig svara einhverjum spurningum sem mér finnst ekki eiga heima í borgar­stjórnarsal,“ sagði hún.

Kl. 18:39

„Við ættum ekki að espa upp í okkur einhverja móðursýki varðandi þetta,“ sagði Hjálmar Sveinsson borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar í andsvari við ræðu Svein­bjargar Birnu Sveinbjörns­dóttur, oddvita Fram­sóknar og flugvallar­vina. Benti hann á að lítið hefði verið fjallað um samþykkt Reykja­víkurborgar annars staðar en í íslenskum og ísraelskum miðlum. Svein­björg segir mikilvægt að sannreyna og meta tjónið sem hafi orðið og bæta þurfi það upp. 

Kl. 18:36

„Hvernig ætlar borgar­stjórnar­meirihlutinn að bregðast við efnahags­legum afleiðingum þessa flumbru­gangs?“ spyr Svein­björg. Hún segist ætla að óska eftir umsögn borgar­lögmanns um mögulega skaða­bótaskyldu vegna samþykktarinnar um að sniðganga vörur frá Ísrael. Áður hefur Júlíus Vífill, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, boðað að kallað verði eftir öllum gögnum um ákvörðun borgarinnar. 

Kl. 18:33

Svein­björg Birna gagnrýnir Dag B. Eggertsson harðlega en segir að hann hafi „klárlega viðurkennt vanmátt sinn“ og sé „að því leyti maður að meiri“. Svein­björg les nú upp tilkynningu utan­ríkis­ráðuneytisins í heild sinni. Í þeirri tillögu kom fram að ákvörðun borgar­stjórnar Reykja­víkur væri hvorki í samræmi við íslensk lög né utan­ríkisstefnu Íslands.

„Sveitar­stjórnir eru eins og önnur stjórn­völd bundin af lögum. Í því felst að Reykja­víkurborg verður að haga stjórn­sýslu sinni í samræmi lög og að ákvarðanir hennar mega ekki fara í bága við þau, þ. á m. lög um opinber innkaup, þar sem óheimilt er að mismuna fyrir­tækjum á grund­velli þjóðernis eða af öðrum sambærilegum ástæðum,“ segir í tilkynningunni. Ekki er tekið fram að samkvæmt 15. gr. laganna njóta aðeins þau fyrirtæki réttar samkvæmt lögunum sem eru með staðfestu í einhverju ríkja Evrópska efnahags­svæðisins eða aðildar­ríkja stofn­samnings Fríverslunar­samtaka Evrópu. 

Svein­björg Birna segist ekki hissa á því að kallað sé eftir afsögn Dags, enda sé iðulega kallað eftir afsögnum þegar axarsköft eru gerð.

Kl. 18:27

Lágmörkun skaðans felst í að draga tillöguna til baka og ekki koma með nýja. Þetta segir Svein­björn í ræðu sinni. Hún segir að líkja megi málinu við það ef fiður úr fiður­kodda fýkur út um allan heim. Nú beri borgar­stjórnar­meirihlutanum að reyna að lágmarka tjónið. „Skaðinn er skeður og fréttir af tillög­unni komnar út um allan heim,“ segir hún.

Kl. 18:25

Svein­björg Birna Sveinbjörns­dóttir, oddviti Fram­sóknar og flugvallar­vina, segir óljóst að hvaða leyti ákvörðunin um að sniðganga ísraelskar vörur varði hagsmuni Reyk­víkinga, þess hóps sem borgar­stjórn eigi að þjóna.

Kl. 18:20

Skúli Helgason, borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar, spurði Júlíus Vífil hvort hann gæti útskýrt í hverju sá mikli skaði fælist sem Ísland hefði orðið fyrir og hvert umfang skaðans væri. Júlíus svaraði meðal annars á þá leið að skaðinn hefði komið skýrt fram í fréttum undan­farna daga. Auk þess væri bagalegt fyrir Reyk­víkinga að vera kallaðir rasistar. „Ég vil ekki láta kalla mig rasista,“ sagði Júlíus í svari sínu við spurningu Skúla.

Kl. 18:10

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, gagnrýnir Dag B. Eggertsson borgar­stjóra og borgar­stjórnar­meirihlutann í Reykjavík harðlega á fundi sem nú stendur yfir í Ráðhúsinu.

„Meirihluti borgar­stjórnar hefur skaðað hagsmuni Íslands. Skaðinn er bæði fjárhags­legur og ímyndar­legur. Orðspor okkar hefur beðið hnekki og það mun taka tíma að vinna það til baka,“ sagði Júlíus á fundinum.

Þá sakaði hann borgar­stjórnar­meirihlutans um valda­græðgi og sagði málið orðið hið ótrúlegasta. „Þetta er eins og framhalds­þáttur sem gæti heitið borgar­stjóra­vaktin en það eru bara allir sofandi á þeirri vakt,“ sagði hann og bætti því við að fjöldi fólks hefði orðið fyrir fjárhags­legum skaða. Líklega ætti einhver eftir að missa vinnuna vegna samþykktar Reykja­víkurborgar um sniðgöngu á ísraelskum vörum.

„Ég tel að umboðs­maður Alþingis sé næsti vettvangur þessa máls,“ sagði hann og fullyrti að augljóst væri að ekki hefði verið farið að reglum um vandaða stjórn­sýslu. Kallaði hann eftir afsögn Dags B. Eggerts­sonar. Þá gagnrýndi hann Árna Pál fyrir að hafa sagt í viðtali við vefmiðilinn The Electronic Intifada að haft yrði samráð við palestínsk yfirvöld um næstu skref. Furðaði hann sig á því að Árni hefði rætt við „palestínskan áróðursvef“ og lofað „samráði við stjórn­völd í palestínu“. „Maður veltir fyrir sér á hvaða stað Samfylkingin er eiginlega komin,“ sagði Júlíus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár