Hefur gagnrýnt framgöngu annarra á samfélagsmiðlum – en „lækar“ sjálf í umdeildu máli

Spjótin beinast nú að Áslaugu Örnu fyrir að hafa „lækað“ Facebook-færslu Loga Bergmanns Eiðssonar þar sem hann segist saklaus af þeim sökum sem á hann eru bornar. Hún hefur áður gagnrýnt vara­ríkis­saksóknara fyrir framgöngu á samfélags­miðlum.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir vís­inda-, iðnaðar og ný­sköp­un­ar­ráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir vís­inda-, iðn­aðar og ný­sköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir vís­inda-, iðnaðar og ný­sköp­un­ar­ráðherra „lækaði“ stöðu­uppfærslu Loga Bergmanns Eiðssonar fjölmiðla­manns á Facebook í gærkvöldi þar sem hann lýsir yfir sakleysi sínu vegna ásakana um kynferðis­brot.

Ýmsir hafa gagnrýnt ráðherrann fyrir „lækið“ í ljósi þess að Áslaug Arna er fyrr­verandi dómsmála­ráðherra og tók meðal annars þátt í myndbandi með yfir­skriftinni „Ég trúi“ þar sem þekktir einstaklingar lýstu yfir stuðningi við þolendur kynferðis­afbrota.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Áslaug Arna kemst í fréttirnar vegna umræðu um „læk“ en í byrjun september á síðasta ári gagnrýndi hún vara­ríkis­saksóknara fyrir framgöngu hans á samfélags­miðlum. Hún taldi að hann mætti ekki rýra traust og trú almennings með framgöngu sinni á opinberum vettvangi.

Forsagan er sú að Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttar­lögmaður birti á Facebook brot úr skýrslu­töku lögreglu af þolanda í ofbeldis­máli. Helgi Magnús Gunnarsson vara­ríkis­saksóknari setti „læk“ við færsluna og deildi henni en hún varð mjög umdeild á sínum tíma.

Áslaug Arna sagði í samtali við Vísi þann 8. september að henni fyndist mjög vafasamt af vararíkissaksóknara að tjá sig með þeim hætti sem hann hefði gert á samfélags­miðlum. „Það má alveg gagnrýna hann fyrir það," sagði hún.

Eyddi myndbandinu

Eftir „læk“ Áslaugar Örnu í gær hefur umræðan einnig snúist um fyrrnefnt mynd sem kom út í maí síðastliðnum þar sem hún kom fram og sagðist trúa þolendur kynferðis­ofbeldis. Mynd­bandið var framleitt af hlað­varpinu Eigin konum í tengslum við metoo-bylgjuna sem þá reið yfir. „Ég tók bara af­stöðu með því að styðja þær vin­konur mínar og þol­endur sem hafa stigið fram í að segja sína sögu,“ sagði hún í samtali við Vísi á þessum tíma.

Eftir umræðu á Twitter um málið í gær og gagnrýni á Áslaugu Örnu og „lækið“ eyddi Edda Falak, sem heldur úti hlað­varpinu Eigin konur, mynd­bandinu og er því ekki hægt að sjá það lengur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár