Trump gefur 200 þúsund manns frá El Salvador 18 mánuði til að fara

Um 200 þúsund manns frá El Salvador hafa verið með tíma­bundna heimild til dvalar í landinu, en Donald Trump hefur nú breytt þeirri stöðu og gefur þeim 18 mánuði til að fá lengri heimild eða fara.

Um 200 þúsund manns frá El Salvador hafa verið með tíma­bundna dvalar­heimild í Banda­ríkjunum (Temporary Protected Status), en stór hluti þeirra fengu hana árið 2001, þegar tugþúsundir fengu að koma til Banda­ríkjanna vegna jarð­skjálfa heima fyrir, sem leiddi til mikillar eyði­leggingar og um þúsund dauðsfalla.

Fólkið hefur fengið að dvelja í Banda­ríkjunum og hefur stór hluti þeirra verið við störf í Banda­ríkjunum. Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur nú breytt stöðu þessa fólks og gefið því 18 mánuði til að yfirgefa landið eða finna sér varanlegt atvinnu- og dvalar­leyfi til að vera áfram í landinu.

Dvalar­heimild fólksins átti formlega að renna út í dag, og var búist við því að hún yrði framlengd, að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post. En heimildinni hefur nú verið breytt, eins og áður segir.

Ákvörðunin hefur fallið í grýttan jarðveg, ekki síst hjá Demó­krötum í bandaríska þinginu. Þá hafa samtök fólks frá Suður-Ameríku í Banda­ríkjunum mótmælt ákvörðuninni harðlega, og sagt hana „ómanneskjulega“ ekki síst þar hún bitni á um 270 þúsund börnum þessa fólks sem ákvörðunin nær til, sem eru fædd í Banda­ríkjunum og hafa aldrei annars staðar búið. Réttar­staða þeirra er ekki ljós.

Hafa samtökin gert kröfu um að þessari ákvörðun verði breytt, en Trump og stjórn hans hafa nú þegar fyrir­skipað breytinguna, og verður fólkið að vera farið úr landi - eða fengið varanlega dvalar­heimild - fyrir 9. september 2019, eins og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár