Márki-Zay leiðir ungversku stjórnarandstöðuna gegn Orbán

Óflokks­bund­inn íhalds­maður á miðjum aldri sem heitir því að berj­ast gegn spill­ingu í Ung­verja­landi mun leiða sex flokka kosn­inga­banda­lag ung­verskra stjórn­ar­and­stæð­inga gegn Viktori Orbán og Fidesz-flokki hans í vor.

Péter Márki-Zay hefur verið borgarstjóri í Hódmezővásárhely frá árinu 2018.
Péter Márki-Zay hefur verið borg­ar­stjóri í Hódmezővásárhely frá árinu 2018. Mynd: EPA

Péter Márki-Zay verður for­sæt­is­ráð­herra­efni ung­versku stjórn­ar­and­stöð­unnar í þing­kosn­ingum sem fram fara í land­inu á næsta ári, en hann hafði betur í seinni umferð for­vals stjórn­ar­and­stöð­unnar, sem lauk í gær.

Márki-Zay, sem er óflokks­bund­inn íhalds­maður og borg­ar­stjóri í lít­illi borg sem heitir Hódmezővásárhely, hafði betur gegn Klöru Dobrev, leið­toga Lýð­ræð­is­banda­lags­ins, í seinni umferð leið­toga­kjörs­ins, með 57 pró­sentum atkvæða.

Naut stuðnings borgarstjórans í Búdapest

Dobrev, sem er vara­for­seti Evr­ópu­þings­ins, hlaut flest atkvæði í fyrri umferð for­vals­ins. Í kjöl­far þess að hún vann þann sigur ákvað Gergely Karácsony, borg­ar­stjóri í Búdapest, sem ásamt þeim tveimur vann sér einnig inn þátt­töku­rétt í seinni umferð­inni, að draga sig úr bar­átt­unni og lýsa yfir stuðn­ingi við Márki-Zay, sem hlaut að end­ingu meiri­hluta atkvæð­anna.

Stuðn­ingur við Márki-Zay var einmitt yfir­gnæf­andi í Búdapest, á meðan að Dobrev naut meira fylgis í dreif­býli.

Hann mun því leiða kosn­inga­banda­lag sex stærstu flokk­anna í ung­versku stjórn­ar­and­stöð­unni, sem sett hefur verið saman til höf­uðs Viktori Orbán og Fidesz-flokki hans, sem hefur verið við völd í rúman ára­tug.

Fulltrúi sameinaðrar stjórnarandstöðu í borgarstjórn

Márki-Zay er ekki ókunn­ugur því að takast á við Fidesz-flokk­inn, því hann var einmitt full­trúi sam­einaðrar stjórn­ar­and­stöðu í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Hódmezővásárhely, sem er lítil borg í sunn­an­verðu Ung­verja­landi, árið 2018.

Þar náði hann að hafa betur, þrátt fyrir að Fidesz-flokk­ur­inn hafi verið með yfir­burða­stöðu í borg­inni. Hefur kosn­inga­sigur hans verið nefndur sem fyr­ir­mynd að því sam­starfi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á lands­vísu nú.

Márki-Zay, sem er 49 ára gam­all sjö barna faðir, hefur lýst því yfir að hann ætli sér að sam­eina stjórn­ar­and­stæð­inga bæði til hægri og vinstri í breið­fylk­ingu gegn Orbán og ólýð­ræð­is­legum til­burðum stjórnar hans.

„Við viljum nýtt, hreinna, heið­ar­legra Ung­verja­land,“ sagði Márki-Zay við stuðn­ings­menn sína í gær.

Í umfjöllun þýska mið­ils­ins DW er haft eftir ung­verska stjórn­mála­fræð­ingnum Peter Kreko að sú stað­reynd að Márki-Zay sé íhalds­maður kunni að verða honum og stjórn­ar­and­stöð­unni til tekna.

Kreko segir að það muni reyn­ast ráð­andi öflum erfitt að teikna leið­toga stjórn­ar­and­stöð­unnar upp sem vinstri­s­inn­aðan vopna­bróður frjáls­lynda auð­jöf­urs­ins George Soros, sem Orbán hefur á und­an­förnum árum talað um sem óvin rík­is­ins.

„Auðvitað munu þeir reyna, en það verður tví­mæla­laust erf­ið­ara,“ segir Kreko.

Skoð­ana­kann­anir benda til þess að litlu sem engu muni á fylgi sam­ein­uðu stjórn­ar­and­stöð­unnar og Fidesz-flokk Orbáns og því er útlit fyrir spenn­andi kosn­ingar í Ung­verja­landi í apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár