Norwegian í lífróðri

Norska flug­félagið freistar þess að fá inn nýtt hlutafé. Grein­endur eru svart­sýnir á stöðu félagsins.

Stærstu hluthöfum norska flug­félagsins Norwegian býðst nú að kaupa hlutabréf í félaginu fyrir 1,3 milljarða norskra króna, eða sem nemur um 17 milljarða íslenskra króna.

Fjár­mögnunin hófst í dag, og er fresturinn til að tilkynna þátttöku gefinn þar til í fyrra­málið, samkvæmt tilkynningu frá Norwegan. Félagið á í harðri samkeppni við önnur flugfélög, ekki síst þau norrænu, þar á meðal Icelandair og WOW Air.

Vonir standa til þess að hið auka fé muni tryggja stöðu félagsins og gera því mögulegt að sækja fram, að því er fram kemur í umfjöllun www.turisti.is.

Vöxtur Norwegian hefur verið hraður síðustu ár og er félagið nú orðið það stærsta á Norður­löndum, sé horft til heildar­farþega­fjölda og ferða.

Umsvifin takmarkast þó ekki aðeins við flug til og frá Norður­löndunum því félagið er með starf­stöðvar í nokkrum Evrópu­löndum, vestanhafs og í Argentínu.

„Reksturinn hefur hins vegar verið þungur og á síðasta ári tapaði félagið um 300 milljónum norskra króna, um 3,8 milljörðum íslenskra króna. Þetta ár byrjar líka illa og því hefur félagið lækkað afkomuspá sína en tapreksturinn er aðallega rakinn til hækkandi olíuverðs,“ segir í umfjöllun Túrista.

Ekki er langt síðan að Michael O´Leary, forstjóri Ryanair, stærsta lággjalda­flugfélags Evrópu, lét hafa eftir sér að staða Norwegian væri erfið. Hann hefur ítrekað fullyrt að Norwegian sé eitt þeirra evrópsku flug­félaga sem eigi sér ekki langa framtíð og Karl Johan Molnes, frá verðbréfa­fyrir­tækisins Norne Securities, er líka svartsýnn á fram­haldið.

Í viðtali við norska viðskipta­blaðið Dagens Næringsliv nú í kvöld segir hann að það komi honum ekki á óvart að Norwegian verði að sækja aukið hlutafé en miðað við gang mála þá verði þetta ekki í síðasta skipti sem eigendurnir verði að láta aukið fjármagn í félagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár