Fjórir hafa látist eftir að hafa fengið bóluefni en 18 látast að meðaltali í viku

Bólu­setningarnar verða rann­sakaðar vegna fjögurra andláta bólu­settra. 18 einstak­lingar látast hins vegar í hverri viku í hópnum sem fékk fyrst bóluefnið.

Bólusetning
Bólu­setn­ing Í síð­ustu viku voru hafnar bólu­setn­ingar á heil­brigð­is­starfs­mönnum og fólki í áhættu­hópum. Hér er bólu­sett á Suð­ur­lands­braut. Myndin teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint. Mynd: Heiða Helgadóttir

Frá því bólu­setningar vegna covid-19 hófust fyrir viku hafa fjórir einstaklingar látist í kjölfar þess að hafa fengið bóluefni Pfizer. Þetta segir þó ekki alla söguna, því í forgangs­hópi vegna bólu­setninga látast að meðaltali 18 manns á hverri viku.

Í sameiginlegri tilkynningu frá landlækni, sóttvarna­lækni og Lyfja­stofnun kemur fram að óháð rannsókn verði gerð á auka­verkunum bóluefnis Pfizer, sem hefur verið notað frá 29. desember. Á sama tíma kemur hins vegar fram að ekki sé líklegt orsaka­samhengi milli andláta og bóluefnis. 

„Tilgangur rann­sóknarinnar er að meta hvort líklegt sé að þessi alvarlegu atvik tengist bólu­setningunni eða hvort þau tengist undir­liggjandi sjúkdómum. Eins og sakir standa bendir ekkert til þess að beint orsaka­samhengi sé þarna á milli. Þess ber að geta að sá hópur sem bólu­settur var með fyrstu sendingu bólu­efnisins samanstendur af öldruðum og hrumum einstaklingum sem dvelja á hjúkrunar­heimilum, öldrunar­deildum eða eru í dagdvöl.“

Þá kemur fram að rann­sóknin verði gerð af tveimur sérfróðum læknum á sviði öldrunar og að henni verði hraðað eins og kostur er, þannig að frum­niðurstöður liggi fyrir innan viku til tíu daga.

Ekki kemur fram í frétta­tilkynningunni hversu margir úr mengi þeirra sem dvelja á hjúkrunar­heimilum, öldrunar­deildum eða eru í dagdvöl hafa fengið bóluefnið. Stundin hefur sent fyrir­spurn þess efnis.

Þá kemur ekki heldur fram hversu margir í þeim hópi hafa látist síðustu vikuna og þar af leiðandi hvort andlát séu fleiri en í meðalviku. Því er ekki hægt að álykta um fylgni milli bólu­setninga og andláta, hvað þá orsaka­samhengi.

29 hafa látist af völdum covid-19 á Íslandi og voru allir yfir 60 ára aldri fyrir utan einn, en 20 þeirra yfir áttræðu. Líkur á andliti við greint smit eru 16% fyrir 80 til 89 ára en 18% fyrir 90 ára og eldri, en ekki eru öll smit greind og því öruggt að dánar­hlutfall er lægra. Flest andlátin í haust­bylgju covid-19 á Íslandi komu til vegna hópsmits á öldrunar­lækninga­deild Land­spítalans á Landakoti.

Fram hefur komið að þremur vikum eftir bólu­setningu eigi sér stað seinni sprauta af bólu­efninu. Engar breytingar hafa orðið á áformum heilbrigðis­yfirvalda um bólu­setningar.

Tilkynning um rannsókn

Fréttatilkynning landlæknis, sóttvarnalæknis og Lyfjastofnunar í heild

Lyfja­stofnun hefur verið tilkynnt um fimm alvarlegar aukaverkanir, þar af fjögur andlát, sem hugsanlega kunna að tengjast bólu­setningu við SARS-CoV-2 veirunni. Í öllum tilfellunum erum að ræða aldraða einstaklinga með undir­liggjandi sjúkdóma og sem búa á hjúkrunar­heimilum. Í ljósi þess að um nýtt bóluefni er að ræða hafa land­læknir, sóttvarna­læknir og forstjóri Lyfja­stofnunar ákveðið að fá óháða aðila til að fara gaum­gæfilega yfir þessi fimm alvarlegu atvik.

Tilgangur rann­sóknarinnar er að meta hvort líklegt sé að þessi alvarlegu atvik tengist bólu­setningunni eða hvort þau tengist undir­liggjandi sjúkdómum. Eins og sakir standa bendir ekkert til þess að beint orsaka­samhengi sé þarna á milli. Þess ber að geta að sá hópur sem bólu­settur var með fyrstu sendingu bólu­efnisins samanstendur af öldruðum og hrumum einstaklingum sem dvelja á hjúkrunar­heimilum, öldrunar­deildum eða eru í dagdvöl. Hafa ber í huga að að jafnaði látast 18 einstaklingar á dvalar- og hjúkrunar­heimilum á viku hverri. Rann­sóknin verður gerð af tveimur sérfróðum læknum á sviði öldrunar og verður henni hraðað eins og kostur er. Stefnt er að því að frum­niðurstöður liggi fyrir innan viku til 10 daga.

Jafnframt hefur verið kallað eftir upplýsingum frá Norður­löndunum og frá Lyfja­stofnun Evrópu um hvort sjá megi aukna tíðni dauðsfalla hjá eldri einstaklingum sem hafa verið bólu­settir í öðrum Evrópu­löndum undan­farna daga og vikur. Þá fer fram sérstök tölfræði­greining á dauðsföllum í þessum hópi á vegum embættis land­læknis.

Vakin er athygli á því að allar íslenskar tilkynningar um mögulegar aukaverkanir lyfja eru skráðar í miðlægan gagna­grunn sem Lyfja­stofnun Evrópu heldur úti til frekari greiningar, með það að markmiði að tryggja svo kostur er gæði og öryggi lyfja. Fyrir Íslands hönd tekur Lyfja­stofnun virkan þátt í þeirri vinnu.

Þegar niður­stöður rann­sóknarinnar liggja fyrir verður skoðað hvort breyta þurfi nálgun að bólu­setningum eldri einstaklinga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár