Fyrstu Íslendingarnir bólusettir

Þorleifur Hauksson ætlar ekki að gera neitt sérstakt eftir að hafa fengið bólu­setningu og fer ekki í bæinn nema hann þurfi.

Fyrsti Íslend­ingurinn utan heilbrigðis­stétta til að fá mótefna­sprautuna frá Pfizer sem ver hann gegn Covid-19 var Þorleifur Hauksson, 63 ára gamall íbúi á hjúkrunar­heimilinu Seljahlíð í Selja­hverfinu í Breið­holti, sem samþykkti að ríða á vaðið eftir að þrír aðrir íbúar heimilisins höfnuðu því að verða fyrst. 

Þorleifur sagðist í morgun vera „mjög svo“ spenntur, en tók athöfninni með hægð og líkti henni við venjulega flensu­sprautu. „Þetta var bara eins og að láta sprauta sig við flensu,“ sagði Þorleifur. 20 íbúar Selja­hlíðar fá sprautu í dag og verða að líkindum ónæmir fyrir covid-19 sem valdið hefur víðtækum takmörkunum á daglegu lífi undan­farna níu mánuði.

Þorleifur kemur ágætlega undan faraldrinum. Spurður hvað hann hyggist gera eftir að hann fær seinni sprautuna að þremur vikum liðnum er svarið: „Ekkert sérstakt.“

Um hvort hann muni ekki rjúka í bæinn, sagði Þorleifur: „Nei, ég fer ekki í bæinn nema ég þurfi“. Hann neitaði því ekki að þetta gæfi honum aukið frelsi til þess að fara um.

„Það hefur aðallega verið í sambandi við þegar það hefur þurft að hringja á undan sér til þess að koma til mín og það mátti bara koma einn í einu. Eins og tveir bræður mínir, þeir máttu ekki koma sama daginn.“ 

Margrét Árdís Ósvalds­dóttir, forstöðu­maður Selja­hlíðar, sagði bólu­setninguna sýna ljósið við enda gangnanna. 

Þor­leifur heilsar ráð­herraFyrsti eldri borg­ar­inn til að fá bólu­efna­sprautu mundar handa­bandið að gömlum sið en Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra færir fram oln­bog­ann í takt við vend­ingar árs­ins 2020.
Þor­leifur fyrir bólu­setn­inguÞrír aðrir íbúar höfn­uðu því að verða fyrstir bólu­settir.

Heilbrigðis­starfsfólk er í fyrsta forgangs­hópi og voru fyrstir þeirra bólu­settir í Skafta­hlíð 24 í morgun. Líklega tekur tvo daga að bólusetja 770 manns í fyrstu umferð.

Fólk sem er í forgangs­hópi fyrir bólu­setningu mun fá skilaboð í síma um mætingu í sprautu. Óskar Reyk­dalsson, forstjóri Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins, greindi frá því í Seljahlíð í morgun að viðkomandi fái uppgefinn ákveðinn tíma í skila­boðunum og komi með símann og sýni strika­merki. „Síðan bíðum við í fimmtán til tuttugu mínútur með fólk áður en það fær að fara heim. Og það eru öryggis­ráðstafanir sem hefur sem betur fer nánast hvergi þurft að nota neitt. Sumir vilja fá sér vatnssopa eða líður aðeins betri með því, en alvarlegar aukaverkanir eru bara nánast engar þó það sé búið að sprauta milljónir.“ 

Hann sagði að gæði bólu­efnisins skipti miklu máli og að það hafi varla sést svo gott bóluefni. Þeir sem hafa alvarlegt ofnæmi og hafa farið í ofnæmis­lost eiga ekki að fá bólu­setninguna.

Starfs­maður Land­spít­ala bólu­settur
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár