Rússar reyndu að hakka sig inn í bandaríska kosningakerfið

Gögn sem vefurinn The Intercept birti í gær sýna að leyni­þjónusta rússneska hersins reyndi að hakka sig inn í kosninga­kerfi Banda­ríkjanna.

Vladimir Pútín, forseti Rússlands.
Vladimir Pútín, for­seti Rúss­lands. Mynd: RIA NOVOSTI

Rússneskir tölvu­hakkarar, á vegum leyni­þjónustu rússneska hersins, reyndu ítrekað að hakka sig inn í kosninga­kerfið í Banda­ríkjunum en árásunum linnti ekki fyrr en nokkrum dögum fyrir kosningarnar, 8. nóvember í fyrra.

Þetta kemur fram í skjali sem lekið var til vefsins The Intercept, en það var unnið á vegum Þjóðar­öryggis­stofnunar Banda­ríkjanna (NSA). Fjallað var um gögnin á vefnum í gær, en 25 ára gömul kona, Reality Leigh Winner að nafni, samkvæmt fréttavef CNN, hefur verið ákærð vegna lekans. Refsingin

Hún starfaði sem verktaki hjá Pluribus International Corporation í Georgíu­ríki, en ákæran er gefin út af saksóknara dómsmála­ráðuneytis Banda­ríkjanna. Í frétt CNN er hún sögð hafa viðurkennt að hafa lekið gögnunum við yfirheyrslu en hún var handtekin 3. júní síðastliðin.

Ritstjórn The Intercept, sem sérhæfir sig í fréttum um þjóðar­öryggismál í Banda­ríkjunum, segist hafa fengið gögnin nafnlaust og hafi því ekki upplýsingar um hver lak þeim.

Í gögnunum sést að tölvu­árásirnar hafi verið framkvæmdar af leyni­þjónustu rússneska hersins. Donald J. Trump Bandaríkja­forseti hefur fullyrt, ítrekað, að rússnesk stjórn­völd hafi ekki staðið fyrir neinum tölvu­árásum í aðdrag­anda kosninganna í fyrra, og hefur kallað rann­sóknir alríkis­lögreglunnar FBI, leyni­þjónustunnar CIA, og tveggja þing­nefnda Banda­ríkjaþings, á tengslum Rússa við framboðs Trumps, norna­veiðar.

Framundan eru yfirheyrslur í Banda­ríkjaþingi, þar sem þing­nefndir munu spyrja út í tengsl tengsl rússneskra yfirvalda við framboð Trumps, og tölvu­árásir á framboð Hillary Clinton. Meðal þeirra sem eru til rann­sóknar hjá FBI eru Jared Kushner, tengda­sonur Trumps og náinn ráðgjafi hans, Michael Flynn, fyrr­verandi þjóðar­öryggis­ráðgjafi Trumps forseta og Jeff Sessions, núverandi dómsmála­ráðherra.

Eins og kunnugt er þá rak Trump James Comey, sem var æðsti yfirmaður FBI, en hann mun koma fyrir Banda­ríkjaþing í opna yfirheyrslu síðar í þessari viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár