Hagsmunahópum gefinn laus taumur í einkavæðingu heilbrigðiskerfisins

Sigur­björg Sigur­geirsdóttir stjórnsýslu­fræðingur segir að tekin hafi verið pólitísk ákvörðun um „að hafa aðgang sérgreina­lækninga að lækninga­markaðnum utan sjúkra­húsa óheftan, en takmarka aðgang heilsugæslu­lækninga“.

„Hljóðlátur skrið­þungi einka­væddrar læknisþjónustu utan sjúkrahúsa“ hefur smám saman þrengt að þeirri hugmynd um heildarsýn og samhæfingu sem var leiðar­stefið í uppbyggingu heilsu­gæslunnar á Íslandi í upphafi. Ekki hefur tekist að gera heilsu­gæsluna að fyrsta viðkomu­stað sjúklinga þrátt fyrir að það hafi verið stefna heilbrigðis­yfirvalda til margra ára. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í grein Sigur­bjargar Sigur­geirsdóttur, dósents í opinberri stjórn­sýslu við Stjórnmála­fræði­deild Háskóla Íslands, sem birtist í nýjasta tölublaði Stjórn­mála og stjórn­sýslu.

Í greininni er fjallað með nokkuð ítarlegum hætti um íslenska heilbrigðis­kerfið, einkum fyrir­komulag sérgreina- og heilsugæslu­lækninga og þróun þess á undan­förnum áratugum. Niður­staða Sigur­bjargar er sú að stjórn­völdum hafi ekki tekist að mynda samstöðu um að gera hugmyndina um heilsu­gæsluna sem fyrsta viðkomu­staðinn í heilbrigðis­kerfinu að sérstöku forgangs­máli. Sú stefna um hlutverk heilsu­gæslunnar innan heilbrigðis­kerfisins sem mörkuð er í lögum hafi liðið fyrir skort á langtímasýn og samfelldri pólitískri forystu sem gæti fylgt slíkri sýn eftir. 

Pólitísk ákvörðun um aukinn einkarekstur

„Einka­rekin lækninga­þjónusta utan sjúkra­húsa hefur þess í stað aukist jafnt og þétt innan kerfisins og smám saman þokað þeirri lækninga­þjónustu utan sjúkra­húsa sem þar var fyrir út á hliðar­línu kerfisins,” skrifar Sigur­björg og bætir við: „Heilsugæslu­lækningar á höfuð­borgar­svæðinu náðu aldrei að verða nægilega öflugar til að geta staðið gegn þungum straumi tækni­væddra sérgreina­lækninga utan sjúkra­húsa. Það var pólitísk ákvörðun að hafa aðgang sérgreina­lækninga að lækninga­markaðnum utan sjúkra­húsa óheftan, en takmarka aðgang heilsugæslu­lækninga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár