Framkvæmdastjóri þingflokks Bjartrar framtíðar fullyrðir ranglega að Samfylkingin hafi greitt atkvæði með leiðréttingunni

Björt framtíð gefur villandi upplýsingar um afstöðu mismun­andi flokka til skulda­leið­réttingarinnar. Framkvæmda­stjóri þing­flokks Bjartrar framtíðar kvartar undan „heiftúðugri“ umræðu.

Helga Sigrún Harðar­dóttir, fyrr­verandi þingkona Framsóknar­flokksins sem nú starfar sem framkvæmda­stjóri þing­flokks Bjartrar framtíðar, fullyrðir á Facebook að þingmenn Samfylkingarinnar hafi greitt atkvæði með því að tugir milljarða yrðu nýttir til að fjármagna höfuðstóls­lækkun verð­tryggðra húsnæðis­lána á síðasta kjör­tímabili. Hið rétta er að þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn frum­varpinu um skulda­leið­réttinguna og sátu hjá þegar fjárlög ársins 2014 voru afgreidd á Alþingi líkt og hefð er fyrir að stjórnar­andstaðan geri við afgreiðslu fjárlaga. 

„Það má spyrja sig hvers vegna t.d. Samfylkingin greiddi atkvæði með því að milljarða­tugir væru nýttir með þessum hætti því frum­varpið um leið­réttinguna þurfti stuðning af fjár­laga­frumvarpinu til að það yrði að veruleika... En þetta veistu vinur minn,“ skrifar Helga á þræði hjá Loga Einars­syni, formanni Samfylkingarinnar. Þá kvartar hún undan því að umræðan sé „heiftúðug“. 

Björt framtíð hefur haldið því á lofti á Facebook-síðu flokksins í dag að einungis Björt framtíð hafi staðið „gegn því að 80 milljarðar væru notaðir til þess að leiðrétta skuldir þeirra sem áttu mest og þurftu minnst á því að halda“. Sem kunnugt er greiddu nær allir þingmenn Vinstri grænna, Samfylkingarinnar og Pírata atkvæði gegn frumvarpi um höfuðstóls­lækkun verð­tryggðra húsnæðis­lána árið 2014. Björt framtíð bendir hins vegar á að flokkurinn hafi greitt atkvæði gegn breytingar­tillögu við fjár­laga­frumvarpið þar sem veitt var heimild til að verja fjármunum til niður­greiðslunnar. 

Á Facebook-síðu flokksins er vísað til atkvæða­greiðslu um fjár­laga­frumvarp ársins 2014 sem sneri að 20 milljarða fjár­heimild til niður­greiðslu verð­tryggðra húsnæðis­skulda það ár. Björt framtíð deilir hlekk á atkvæða­greiðsluna og skrifar: „Minnum á hvaða flokkur stóð, einn flokka, gegn því að 80 milljarðar væru notaðir til þess að leiðrétta skuldir þeirra sem áttu mest og þurftu minnst á því að halda“ auk þess sem fullyrt er í athugasemd fyrir neðan að Björt framtíð hafi greitt atkvæði gegn því að „umræddir fjármunir“, þ.e. 80 milljarðar, yrðu notaðir til að greiða fyrir leið­réttinguna. Hins vegar snerist atkvæða­greiðslan um 20 milljarða fjár­heimild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár