Fimm leiðir til að lífga upp á gráu dagana

Suma daga er líkt og vorið sé alveg á næsta leiti. Sólar­geislarnir gægjast inn um gluggana, fugla­söngur ómar í fjarlægð og sund­laugarnar fyllast af fólki. En síðan, líkt og hendi væri veifað, kemur næsta vetrar­lægð. Næsta hret. Veðrið hefur óneitanlega áhrif á andlega líðan fólks og flestir Íslendingar eru fyrir löngu orðnir langeygir eftir betri tíð. Á meðan við bíðum er hins vegar ýmislegt sem við getum gert til þess að lífga upp á gráu dagana og á vefsíðunni happier.com eru nokkrar hugmyndir sem heimfæra má á íslenskan veruleika.

1. Farðu út!

Í stað þess að hírast innandyra í hvert skipti sem kalt er í veðri, rigning eða snjókoma, gæti verið hressandi að klæða sig í hlífðar­gallann og fara út. Sem dæmi væri hægt að fara í kröftuga göngu um hverfið, út að hoppa í polla með börnunum eða setjast út á verönd með kaffi­bollann, húfuna og vettlingana. 

2. Finndu hamingjuna í litunum

Það má lífga upp á grámann í tilverunni með því að klæðast líflegum litum. Hvort sem það er litríkur trefill, skært naglalakk eða röndóttir sokkar þá eru líkur á að litirnir munu fá þig og þá sem eru í kringum þig til þess að brosa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár