Afarkostir Pútíns bera árangur

Sum af stærstu dreifingar­fyrirtækjum á jarðgasi í Evrópu hafa ákveðið að mæta kröfum Rúss­lands­forseta og borga fyrir gasinn­flutning frá landinu í rússneskum rúblum. Fyrir­komulagið sér til þess að gengi gjald­miðilsins haldist stöðugt, þrátt fyrir þvinganir

Vladimír Pútín, forseti Rússlands
Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands Mynd: EPA

Fjöldi evrópskra kaupenda á jarðgasi frá Rússlandi hafa ákveðið að verða við afar­kostum frá ríkis­stjórn landsins og munu greiða fyrir gasið sitt í rúblum í kjölfar þess að Rússar lokuðu á gasútflutning til Póllands og Búlgaríu þar sem þessum kröfum var ekki mætt. Þetta kemur fram í frétt frá Financial Times sem birtist í morgun.

Samkvæmt fréttinni eru tveir stærstu jarðgas­kaupendur í Evrópu – þýska orku­fyrirtækið Uniper og austurríska iðnfyrirtækið OMV – á meðal þeirra sem ætla að opna sérstaka banka­reikninga í rúblum til að geta greitt fyrir gasinnflutninginn sinn frá Rússlandi. Fyrir­tækin segja að mikill hiti hafi verið í samninga­viðræðum á síðustu dögum, þar sem stutt hafi verið í gjalddaga.

Fyrir tveimur dögum síðan tilkynnti ríkis­stjórn Rússlands að ekkert jarðgas myndi flæða til Búlgaríu og Póllands, þar sem orku­dreifingar­fyrirtæki landanna neituðu að verða við þessum kröfum. Forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, Ursula von der Leyen, gagnrýndi ákvörðunina og sagði hana vera óréttlætanlega og óásættanlega í opinberri tilkynningu í gærmorgun. Forsætis­ráðherra Póllands, Mateusz Morawiecki, sagði svo ákvörðunina vera „beina árás“ á landið.

Mögulega gegn viðskiptaþvingunum

Tilgangur ákvörðunar Vladimír Pútíns, Rúss­lands­forseta, um að krefjast greiðslna í rúblum er margþættur, samkvæmt umfjöllun Fortune. Annars vegar væri hann þjóð­hagslegur, þar sem hægt yrði að styrkja gengi þjóðar­gjaldmiðils Rússa ef fleiri aðilar eiga í viðskiptum með hann. Líkt og Kjarninn greindi frá hrundi virði rúblunnar á fyrstu dögum innrásar Rússlands í Úkraínu, en hefur náð aftur fyrri styrk síðan þá vegna gjaldeyris­hafta og mikilla vaxta­hækkana í landinu.

Hins vegar segir Fortune að tilgangurinn sé einnig pólitískur, þar sem ákvörðunin myndi neyða evrópsk fyrirtæki til að ganga að hans kröfum. Slík eftirgjöf gæti reynst fyrir­tækjunum erfið, þar sem víðtækar viðskipta­þvinganir á milli aðildar­ríkja Evrópu­sambandsins og Rússlands frá upphafi innrásarinnar.

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins hefur áður lýst því yfir að greiðsla á rússnesku jarðgasi í rúblum gæti gengið gegn gildandi viðskipta­þvingunum sambands­ríkjanna við Rússland. Ríkis­stjórnir í Þýska­landi og Hollandi hafa hvatt fyrirtæki í löndunum til að verða ekki við þessum kröfum, en ítalska ríkis­stjórnin hefur ekki enn gefið upp hvort hún ætli að gera það eða ekki. Samkvæmt frétt FT þarf ítalska orku­fyrirtækið ENI, sem er að meirihluta í almanna­eigu, að taka ákvörðun um málið fyrir lok maímánaðar.

Samkvæmt umfjöllun Guardian um málið gætu evrópsk fyrirtæki sem hafa ákveðið að setja upp banka­reikninga í rússneskum bönkum til að verða við kröfum Rússa mögulega komist hjá því að ganga gegn gildandi viðskipta­þvingunum. Slík undankomu­leið byggi á því hvort evrum sé skipt yfir í rúblur fyrir eða eftir að kaup á jarð­gasinu hafi verið samþykkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár