Rúblan orðin verðminni en krónan

Virði rúss­nesku rúblunnar er nú í frjálsu falli og hefur lækkað um meira en fimmt­ung gagn­vart Banda­ríkja­dal í dag. Gjald­mið­ill­inn hefur lækkað um helm­ing frá árs­byrjun kostar nú minna en íslenska krónan.

Virði rúss­nesku rúblunnar er nú minna en virði íslensku krón­unnar, í fyrsta skipti í að minnsta kosti 16 ár. Þetta kemur fram þegar gengi rúblunnar við Banda­ríkja­dal er borið saman við gengi krón­unnar við Banda­ríkja­dal.

Líkt og Kjarninn hefur greint frá í dag hafa kort­ar­isarnir Mastercard og Visa, auk greiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Paypal, lokað á allt pen­inga­flæði til og frá Rúss­lands í gegnum sín kerfi. Einnig hefur fjöldi rúss­neskra banka verið úti­lok­aður frá alþjóð­lega greiðslu­miðl­un­ar­kerf­inu SWIFT. [adspot]

Rúss­neska rík­is­stjórnin birti svo í morgun lista yfir þjóðir sem hún telur vera óvin­veittar sér. Ísland var á meðal þess­ara þjóða, en auk þeirra voru Evr­ópu­sam­bands­ríkin, Japan, Suður-Kórea og önnur Vest­ur­lönd. Samkvæmt stjórn­völdum í Kreml mega rúss­neskir skuld­arar greiða upp erlendar skuldir sínar í sínum gjald­miðli, rúblum, ef kröfu­haf­arnir eru frá óvin­veittum ríkjum.

Samkvæmt geng­is­skrán­ingu Seðla­bank­ans kost­aði ein rúbla tæpar tvær krónur í byrjun árs­ins. Þá hafði virði hennar gagn­vart íslensku krón­unni lækkað nokkuð síð­asta ára­tug­inn, en það stóð í fjórum íslenskum krónum árið 2011, líkt og myndin hér að ofan sýnir.

Frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst hefur virði rúblunnar svo hríð­fallið, en það lækk­aði um fjórð­ung gagn­vart krón­unni á milli 18. og 28. febr­úar. Á föstu­dag­inn í síð­ustu viku veikt­ist gengi hennar svo um níu pró­sent. Mesta veik­ing gjald­mið­ils­ins átti sér þó stað í dag, en þegar þetta er skrifað hefur virði hans veikst um 15 pró­sent gagn­vart krón­unni í dag, en veik­ingin gagn­vart Banda­ríkja­dal nemur fimmt­ungi.

Samkvæmt Keldunni nemur sölu­verð Banda­ríkja­dals­ins 133,7 krónum, en 139,38 rúblum, sam­kvæmt Yahoo Finance. Með til­liti til þess­ara talna kostar rúblan því 0,97 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár