110 þúsund strandaglópar eftir fall Monarch Airlines

Fimmta stærsta flugfélag Bretland lenti í vanda og missti flug­rekstrar­leyfið. Fyrir vikið gátu flugvélar félagsins ekki flug farþega.

Monarch Airlines, fimmta stærsta flugfélag Bretlands, hefur misst flug­rekstrar­leyfið vegna rekstrar­vanda og er búið að aflýsa öllu flugi félagsins. Frá þessu er greint á vef breska ríkis­útvarpsins BBC.

Um 110.000 farþegar félagsins eru nú stranda­glópar víða um heim og hefur breska flugmála­stjórnin, CAA, leigt yfir þrjátíu þotur til að fljúga farþegum til síns heima.

Samkvæmt frétt BBC gæti mikið rask orðið á ferða­áætlunum farþegana og er varað við því, að marga daga geti tekið að koma fólki til síns heima.

Monarch Airlines er stærsta flugfélag sem svipt hefur verið flug­rekstrar­leyfi í Bretlandi, að því er segir í umfjöllun BBC. Um 2.500 starfa hjá félaginu, en það var stofnað árið 1968 og hefur vaxið jafnt og þétt síðast. Það hefur flogið með yfir sex milljónir farþega árlega, þegar mest hefur verið. 

Stærsti eigandi félagsins, sjóðurinn Graybull Capital, hefur unnið að endur­skipulagningu rekstrarins og meðal annars reynt að selja hluta starfseminnar til að losa um fjármuni og koma rekstrinum á rétta kjöl. Allt kom fyrir ekki, áður en frestur sem flugmála­stjórnin hafi sett rann út, og því var flug­rekstrar­leyfið aftur­kallað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár