Facebook hrynur í verði

Eftir að gögn voru gerð opinber sem sýndu notkun Cambridge Analytica á notenda­upplýsingum um 50 milljónir manna í Banda­ríkjunum, hefur gengi bréfa fyrir­tækisins hrunið.

Markaðs­virði Facebook hefur hrunið í dag, eða um tæp 7 prósent. Markaðs­virði félagsins er nú rúmlega 500 milljarðar Bandaríkja­dala, eða um 50 þúsund milljarðar króna, og hefur verð­miðinn lækkað um 30 milljarða Bandaríkja­dala í dag, eða um 3 þúsund milljarða króna.

Ástæðan fyrir lækkuninni er sögð, meðal annars í umfjöllun Wall Street Journal, vera ótti fjárfesta við að Facebook muni lenda í vandræðum vegna þess hve illa fyrir­tækinu hefur gengið við að tryggja öryggi og notkun þriðja aðila á persónu­gögnum um notendur.

Um helgina greindi New York Times frá því, að greiningar­fyrirtækið Cambridge Analytica, sem meðal annars vann náið með framboði Donalds Trump Bandaríkja­forseta, hefði safnað upplýsingum um 50 milljónir notenda í Banda­ríkjunum, sem meðal annars voru nýttar til að ná betur til fólks í kosninga­herferðum. Það var ekki gert í gegnum auglýsingar eingöngu, heldur með gervi­vefsíðum og notendum, þar sem litlu sem engu þurfti að fjárfesta í til að ná til fólks með skilaboð.

Á meðal stjórnar­manna Cambridge Analytica var fyrr­verandi ráðgjaf Trumps, Steve Bannon.

Upplýsingunum var safnað saman í gegnum persónu­leika­próf um 270 þúsund notenda, og söfnuðust einnig upplýsingar um vini þeirra sem tóku prófin.

Í yfir­lýsingu frá Facebook segir að fyrir­tækið hafi fengið enduskoðunarfyrirtæki til að skoða hvort Cambridge Analytica hafi notað gögnin eftir að farið var fram á að þeim yrði eytt, sem var árið 2015. Samkvæmt umfjöllun New York Times var gögnunum ekki eytt þá, og voru þau notuð meðal annars í þaul­skipulögðum aðgerðum til að ná kosninga­áróðri til fólks, raunar bæði í Bretlandi og Banda­ríkjunum.

Facebook segir að ef það komi í ljós, að þetta hafi verið gert, þá sé það gróft brot á skilmálum sem fyrir­tækið vinnur eftir þegar kemur að meðhöndlun upplýsinga um notendur.

Í umfjöllun Bloomberg segir að fjár­festar óttist hið versta, og að það komi í ljós að Facebook hafi brugðist þegar komið að öryggi notenda. Það geti svo leitt til alvarlegra afleiðinga fyrir rekstur fyrir­tækisins og framtíðar­áform.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár