Brynjar boðar til opins fundar með dómsmálaráðherra en leggst gegn rannsókn

Stjórnar­andstöðu­þingmenn kalla eftir því að Brynjar Níelsson víki sem formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar. Hann leggst gegn því að nefndin rannsaki embættis­færslur ráðherra.

Brynjar Níelsson, formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, ætlar að halda opinn fund í nefndinni á þriðjudag þar sem dómsmála­ráðherra mun sitja fyrir svörum. Gert er ráð fyrir því að fundurinn fari fram kl. 10 og er fundar­efnið reglur um uppreist æru. Þing­mönnum var tilkynnt um þetta í kvöld samkvæmt upplýsingum Stundarinnar, en samþykkt var á nefndar­fundi á fimmtudag að boðað yrði til opins fundar.

Svandís Svavars­dóttir, fulltrúi Vinstri grænna í nefndinni, segir í stöðu­uppfærslu á Facebook að mikilvægt sé að halda áfram umfjöllun nefndarinnar um verklag við veitingu uppreistar æru. „Í ljósi nýjustu vendinga og stjórnar­slita verður að halda þeirri umfjöllun áfram og ljúka með fullnægjandi hætti,“ skrifar hún og bætir við: „Ljóst er að það getur ekki verið undir forystu Brynjars Níels­sonar.“

Píratar hafa einnig kallað eftir því að Brynjar víki sem formaður nefndarinnar í ljósi atburða undan­farinna daga. Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttis­mála­ráðherra, tók undir þá kröfu í dag.

Haft er eftir Brynjari Níelssyni á Vísi.is að hann telji enga þörf á að stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd rannsaki embættis­færslur forsætis­ráðherra og dómsmála­ráðherra í þeim málum sem leiddu til stjórnar­slitanna eins og Viðreisn hefur kallað eftir.

Forseti Alþingis mun funda með formönnum þing­flokka um framhald þing­starfa í hádeginu á morgun. Síðan er gert ráð fyrir opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar á þriðjudag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár