Segir slagorð Miðflokksins ekkert eiga skylt við heróp íslenskra nasista

Kosninga­slagorð sem Miðflokk­urinn notar líkist slagorði sem UMFÍ notaði upphaf­lega en íslenskir nasistar stálu. Kosninga­stjóri Miðflokksins segir slagorðið vera afurð hópavinna innan flokksins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur notað „Íslandi allt“ í skrifum sínum.

Íslandi allt og Ísland allt
Íslandi allt og Ísland allt Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur sjálfur endað grein á „Íslandi allt“, gömlu slag­orði UMFÍ sem síðar var tekið upp af nas­istum, og nú hefur nýstofn­aður flokkur hans tekið upp slag­orðið „Ísland allt“. Mynd: Pressphotos

Slagorðið sem nýstofnaður stjórn­málaflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, Miðflokkurinn, hefur valið sér er nánast sama slagorð og flokkur íslenskra þjóðernis­sinna notaði á fjórða áratug síðustu aldar. Miðflokkurinn er með slagorðið „Ísland allt“ á meðan Flokkur þjóðernis­sinna notaði „Íslandi allt“. Flokkur þjóðernis­sinna var nasista­flokkur sem notaði haka­krossinn sem merki sitt og gaf út blaðið „Ísland“. Einu -i- munar því á slagorðum flokkanna tveggja. 

Enduðu oft á slag­orð­inuÍslenskir nas­istar á fjórða ára­tug síð­ustu aldar end­uðu skrif sín stundum á Íslandi allt. Hér er for­síða dag­blaðs­ins Ísland sem flokkur þjóð­ern­is­sinna gaf út - slag­orðið sést neðst á for­síð­unni.

Meðal dæma um notkun á slag­orðinu „Íslandi allt“ má nefna eftir­farandi klausu sem birtist í blaðinu Heimdalli árið 1934 undir fyrir­sögninni „Ræfiilsskapur fyrir rétti“: „Nazistabullurnar, sem réðust á Guðjón Bald, sýndu sig álíka mikla ræfla fyrir réttinum eins og þeir voru hugaðir 8 á móti 1 í myrkri. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár