Ossoff vinnur – Demókratar ná meirihluta í öldungadeildinni

AP, CNN, New York Times, Washington Post og Fox News hafa allir lýst demó­kratann John Ossoff sigurvegara í kosningum til öldunga­deildar Banda­ríkjaþings í Georgíu.

John Ossoff, nýkjörinn þingmaður öldungadeildar Bandaríkjaþings í Georgíu.
John Ossoff, nýkjör­inn þing­maður öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings í Georgíu. Mynd: EPA

Helstu frétta­veitur vestanhafs hafa lýst yfir sigri John Ossoff í kosningum til þingsætis í öldunga­deild Banda­ríkjaþings í Georgíu­ríki. Því er ljóst að demó­kratar muni ná meirihluta í öldunga­deildinni.

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í dag voru sumir kosninga­vaktarar og fjöl­miðlar nú þegar búnir að lýsa yfir sigri Ossoff, en stærstu fjöl­miðlarnir héldu að sér höndum þar sem enn var talið of mjótt á mununum milli hans og mótherja hans, repúblíkananum David Perdue, eftir að 98 prósent atkvæðanna voru talin.

Nú hafa þó New York Times, CNN, Washington Post, Associated Press og Fox News þó allir lýst yfir sigri Ossoff og þykir því ljóst að öldunga­deildin er í höndum demókrata með minnsta mögulega meirihluta.

Kosið var til tveggja öldunga­deilda­þingsæta í Georgíu í dag, en demó­kratinn Raphael Warnock og repúblikaninn Kelly Loeffler kepptust um hitt þingsætið. Í morgun lýstu helstu fjöl­miðlar vestanhafs yfir sigri Warnock, en hann er nú með 50,7 prósent atkvæða gegn 49,3 prósentum Loeffler.

Jafnmargir demó­kratar og repúblikanar voru kjörnir í öldunga­deildina, en verðandi vara­forseti Kamala Harris getur veitt demó­krötum meirihluta með odda­atkvæði sínu. Fyrir eru demó­kratar með meirihluta í fulltrúa­deild Banda­ríkjaþings, auk þess sem Joe Biden, fram­bjóðandi demókrata, bar sigur af hólmi í nýafstöðnum forseta­kosningum þar í landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár