Vinstri græn sömdu frá sér stærsta kosningaloforðið

Gáfu gjald­frjálsa menntun barna frá sér við gerð sam­starfs­sátt­mála meiri­hlut­ans í borg­inni. Náðu litlum árangri í félags­legum áherslum sínum eða umhverf­is­málum. Kosn­inga­lof­orðin nú öll hóf­stillt­ari.

Gáfu eftir stærsta kosningaloforðið
Gáfu eftir stærsta kosn­inga­lof­orðið Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, segir að hinn póli­tíski veru­leiki hafi verið sá að sam­starfs­flokk­arnir hafi ekki verið til­búnir til að sam­þykkja slíkt. Loforð flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar nú eru mun hóf­stillt­ari og segir Líf að þau séu meira í anda real-póli­tíkur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Vinstri græn gáfu eftir stærsta kosn­inga­lof­orð sitt fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014 við gerð sam­starfs­sátt­mála borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans. Flokk­ur­inn lof­aði að gera leik­skóla, grunn­skóla og frí­stunda­heim­ili gjald­frjáls en gáfu þá áherslu eftir strax í upp­hafi. Leik­skóla­vist kostar enn tugi þús­unda. Nú lofar flokk­ur­inn aðeins að gera grunn­skól­ann gjald­frjálsan, horfið hefur verið frá gjald­frjálsum leik­skólum og frí­stunda­heim­ilum.

Vinstri græn lof­uðu líka að tryggja börnum leik­skóla­vist að loknu fæð­ing­ar­or­lofi. Það hefur heldur ekki gengið eftir, börn eiga ekki einu sinni trygga leik­skóla­vist við 18 mán­aða aldur. Nú er lof­orðið að opn­aðar verði ung­barna­deildir í öllum hverfum borg­ar­innar. Mönn­un­ar­vanda í leik­skólum átti einnig að leysa en það hefur sann­ar­lega ekki tek­ist.

Vinstri græn lof­uðu einnig upp­bygg­ingu 2.500 leigu- og búsetu­réttar­í­búða á kjör­tíma­bil­inu. Þó það hafi ekki gengið eftir að því marki að búið sé að full­byggja þær íbúðir þá eru þær, og fleiri til, í kort­unum og því sann­gjarnt að segja að þar hafi Vinstri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár