Grikkir gefa út skuldabréf að nýju

Grísk stjórn­völd tilkynntu að ríkis­skuldabréf þeirra verði gefin út á morgun, í fyrsta skiptið í þrjú ár.

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, til hægri.
Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, til hægri. Mynd: YANNIS KOLESIDIS / EPA

Stjórn­völd í Grikk­landi hafa ákveðið að gefa út ríkis­skuldabréf að nýju eftir þriggja ára hlé. Þetta kemur fram á frétt á vef Bloomberg.

Samkvæmt tilkynningu frá kaup­höllinni í Aþenu hefur ríkis­stjórn landsins ákveðið að gefa út bréf til fimm ára og tveggja ára, en búist er við að útboðið eigi sér stað á morgun.

Með sölunni vonast núverandi ríkis­stjórn Alexis Tsipras að undirbúa sig fyrir endalok björgunar­aðgerða Evrópu­sambandsins í ágúst 2018 ásamt því að svala um 19 milljarða evra fjár­mögnunar­þörf landsins. Skuldabréfa­útgáfuna má sjá sem stefnu­breytingu í kjölfar þess að grísk stjórn­völd náðu ekki að sannfæra kröfuhafa sína um að minnka skulda­byrði landsins.

Samkvæmt viðmælenda Bloomberg, fjár­festinga­banka­manninum Lutz Roehmeyer hjá Landesbank Berlin, kemur skuldabréfa­útgáfan á hárréttum tíma fyrir Grikkland. Hún sé undir lok björgunar­aðgerða Evrópu­sambandsins, eftir samþykki fyrir skulda­minnkun fyrir næsta ár og einnig eftir að AGS hefur sagst ætla líklega að taka þátt í björgunar­aðgerðunum. Hins vegar sé hún tilkynnt áður en magn­bundin íhlutun Seðla­banka Evrópu endar og vextir hækka á evru­svæðinu.

Mats­fyrirtækið Standard & Poor’s hækkaði framtíðar­horfur í lánshæfi Grikk­lands, en mat á grískum ríkis­skulda­bréfum stendur enn í B-, einu þrepi fyrir ofan ruslflokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár