Dimon: „Við vitum ekkert hvað gerist“

Banka­stjóri JPMorgan er áhyggju­fullur vegna yfir­vof­andi skulda­bréfa­sölu Seðla­banka Banda­ríkj­anna. For­dæma­laus staða hefur komið upp í kjöl­far pen­inga­legrar slök­unar (magn­bundin íhlutun) víða um hinn vest­ræna heim.

Búist er við að Janet Yellen, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, muni hefja skuldabréfasölu í haust.
Búist er við að Janet Yellen, seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, muni hefja skulda­bréfa­sölu í haust. Mynd: JEWEL SAMAD / AFP/Getty Images

Jamie Dimon, banka­stjóri JPMorgan Chase, sagði viða­mikla skulda­bréfa­sölu Seðla­banka Banda­ríkj­anna vera áhyggju­efni á blaða­manna­fundi í síð­ustu viku. Salan er lokakafli aðgerða seðla­bank­anna sem kölluð er pen­inga­leg slökun, en að sögn Dimon veit eng­inn nákvæm­lega hverjar afleið­ing­arnar verða í kjöl­far hennar.

Ójöfn innspýting, en virkar

Pen­inga­leg slökun (Quantitative easing, stundum nefnd magn­bundin íhlutun) felur í sér að seðla­banki auki pen­inga­magn í umferð með umfangs­miklum kaupum á skulda­bréfum. Þannig ætti láns­fjár­magn að aukast og vextir að lækka, svo ódýr­ara verði að taka lán. Seðla­bankar Banda­ríkj­anna, Englands (Eng­lands­banki), Evrópu og Japan hafa allir beitt pen­inga­legri slökun und­an­farin ár sem inn­spýt­ingu í kóln­andi hag­kerfi sín eftir efna­hags­þreng­ing­arnar sem byrj­uðu árið 2008.

Slökunin hefur verið umdeild meðal hag­fræð­inga, meðal ann­ars vegna þess að hinir rík­ustu virð­ast gagn­ast hlut­falls­lega mest á henni. Þetta var einmitt nið­ur­staða Eng­lands­banka í skýrslu um áhrif pen­inga­legrar slök­unar þar í landi. Lægri vextir leiði til auk­inna fjár­fest­inga og hærra eigna­verðs, stór­eig­endum til hags­bóta. Hins vegar leiddi skýrslan einnig í ljós að slök­unin hafi í raun náð að efla efna­hag Englands á tímum sam­dráttar.

Áskoranir fram undan

Ójafnari skipt­ing auðs er ekki eina vanda­málið sem fylgir pen­inga­legri slökun. Kaup seðla­bank­anna á gríð­ar­legu magni skulda­bréfa vegna slök­un­ar­innar hefur marg­faldað eigna­safn þeirra, en sam­an­lagðar eignir seðla­banka Japans, Banda­ríkj­anna og Evrópu nema nú tæpum 14 trilljónum Banda­ríkja­dala. Nú, þegar hag­vöxtur og verð­bólga eru vax­andi á heims­vísu, stefna seðla­bank­arnir að því að minnka eigna­safnið með því að selja skulda­bréfin sín aftur.

Sölu­ferlið felur í sér ákveðna áskorun, en gæta þarf þess að það fari fram án þess að lang­tíma­vextir land­anna hækki um of og hægi á efna­hags­líf­inu. Seðla­banki Banda­ríkj­anna verður lík­lega fyrstur að minnka við sig, en búist er við að fyrsta sölu­hrina þeirra byrji í sept­em­ber á þessu ári.

„Við vitum ekkert hvað mun gerast“

Bloomberg greindi frá ummælum Jamie Dimon, banka­stjóra JPMorgan Chase, á blaða­manna­fundi síð­asta þriðju­dag. Á blaða­manna­fund­inum lýsti Dimon yfir áhyggjum vegna fyr­ir­hug­aðrar skulda­bréfa­sölu stóru seðla­bank­anna þar sem núver­andi staða þeirra sé for­dæma­laus. „Aug­ljós­lega segir það sitt um áhætt­una sem fylgir þessu ferli að við höfum aldrei upp­lifað annað eins,“ Sagði Dimon. „Þegar sölu­ferlið hefst að fullu gæti það valdið meiri rösk­unum en fólk heldur. Við þykj­umst vita nákvæm­lega hvað muni ger­ast en við gerum það ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár