Eignir lífeyrissjóða þær sömu og fyrir ári og hafa lækkað um 299 milljarða frá áramótum

Lækkandi hlutabréfa­verð hefur gert það að verkum að eignir íslenskra lífeyris­sjóða hafa dregist verulega saman það sem af er ári. Sjóðirnir vilja fá að fjárfesta meira erlendis til að forðast bólu­myndun á Íslandi en stjórn­völd vilja bremsa þá útgöngu af.

Lífeyrissjóðir taka við lögbundnum iðgjöldum almennings og eiga að ávaxta þá til að tryggja sem flestum áhyggjulaust ævikvöld.
Líf­eyr­is­sjóðir taka við lög­bundnum iðgjöldum almenn­ings og eiga að ávaxta þá til að tryggja sem flestum áhyggju­laust ævi­kvöld. Mynd: Bára Huld Beck

Eignir íslenskra lífeyris­sjóða hafa alls skroppið saman um 299 milljarða króna það sem af er ári. Í lok september voru þær 6.438 milljarðar króna en um liðin áramót voru þær 6.747 milljarðar króna. Þá á eftir að taka inn í dæmið þær inngreiðslur sem hafa ratað í sjóði landsins, sem eru vel á annað hundrað milljarðar króna á ári.

Í nýjum hagtölum Seðla­banka Íslands um stöðu lífeyris­sjóðanna kemur fram að eigna­staða þeirra í lok september var nánast sú sama og hún var ári áður og raunar sjö milljörðum króna lakari. Til saman­burðar þá jukust eignir sjóðanna milli september 2020 og 2021 um 946 milljarða króna.

Innlendar eignir sjóðanna lækkuðu um 108 milljarða króna milli mánaða og þær erlendu um 110 milljarða króna.

Hlutabréf lækkað mikið

Sú mikla lækkun sem orðið hefur á eignum sjóðanna á þessu ári er fyrst og síðast tilkomin vegna lækkandi hlutabréfa­verðs, jafnt innanlands sem erlendis. Innlend hlutabréf og hlutdeildar­skírteini í eigu lífeyris­sjóði hafa til að mynda lækkað um 125 milljarða króna það sem af er ári og eigna­flokkurinn hefur ekki staðið lægra síðan í maí í fyrra.

Samdrátturinn í virði erlendra hluta­bréfa hefur verið enn skarpari, eða 241 milljarður króna.

Upptaktur hefur hins vegar verið í útlánum sjóðsins til sjóðs­félaga vegna íbúðar­kaupa í kjölfar mikils samdráttar. Sá samdráttur varð vegna vaxta­lækkanna Seðla­banka Íslands og ákvörðunar hans um að auka svigrúm kerfislegra mikil­vægra banka til útlána um mörg hundruð milljarða króna til að takast á við afleiðingar kórónu­veiru­faraldursins. Það varð til þess að bankarnir dældu út íbúða­lánum og fóru með markaðs­hlutdeild sína í þeim úr 55 prósent í rúmlega 70 prósent á skömmum tíma. Á sama tíma flúðu lántakendur lífeyris­sjóðina. Frá miðju ári 2020 og fram til loka október 2021 voru útlán þeirra neikvæð um 67 milljarðar króna. Síðan þá hafa þau hins vegar verið jákvæð og í september voru ný útlán, umfram upp- og umfram­greiðslur, alls 5,6 milljarðar króna.

Tveir þriðju innlendar eignir

Alls eru tveir þriðju hlutar eigna lífeyris­sjóða innlendar eignir. Hlut­­­fallið hefur hækkað á þessu ári vegna þess verð­­­falls sem varð á erlendu eign­un­um framan af ári, en auk hluta­bréfa sam­anstendur inn­­­­­lenda eignin að upp­­i­­­­stöðu af skulda­bréfum og lánum sem sjóð­irnir hafa veitt sjóðs­félögum til hús­næð­is­­­kaupa.

Skuldabréfa­eign sjóðanna gæti rýrnað umtals­vert í nánustu framtíð ef áform fjármála- og efnahags­ráðherra um að neyða þá til að semja um að taka á sig að minnsta kosti tug milljarða króna tap vegna skulda­bréfa sem útgefin voru af ÍL-sjóði verða að veruleika. Hægt er að lesa um málefni ÍL-sjóðs hér og hér.

Mega bara vera með 50 prósent eigna erlendis

Sam­­­kvæmt gild­andi lögum hafa líf­eyr­is­­­sjóð­irnir heim­ild til að vera með 50 pró­­­sent eigna sinna erlend­­­is. Þeir hafa lengi kallað eftir að þetta hlut­­­fall verði hækkað þar sem nokkrir sjóðir eru komnir ískygg­i­­­lega nálægt hámark­inu. Í vor voru tíu líf­eyr­is­­­­­sjóðir komnir með hlut­­­­­fall eigna sinna erlendis í um 35 pró­­­­­sent af heild­­­­­ar­­­­­eignum eða meira. Þar af voru þrír sjóðir komnir með hlut­­­­­fallið yfir 40 pró­­­­­sent og einn, Líf­eyr­is­­­­­sjóður verzlunarmanna, var kom­inn með það nálægt 45 pró­­­­­sent. Sjóð­irnir þorðu illa að fara með hlut­­­­­fallið hærra þar sem skynd­i­­­­­leg breyt­ing á gengi krónu eða hækk­­­­­­­­­anir á ákveðnum bréfum geta ýtt þeim yfir lög­­­­­­­­­legt hámark.

Samkvæmt frumvarpi sem fjármála- og efnahags­ráðherra lagði fram í haust munu sjóðirnir fá að auka hlut­fall eigna sinna utan Íslands um 1,5 pró­sentu­stig í fjögur ár frá 2024. Eftir það mun heim­ild þeirra hækka um eitt pró­sentu­stig á ári þangað til að hún verður orðin 65 pró­sent árið 2036.

Þegar drög að sam­bæri­legu frum­varpi var lagt fram í vor stóð til að hlut­fallið myndi hækka um eitt pró­sentu­stig á ári frá byrjun árs 2024 og til loka árs 2038.

Of hæg útganga

Þetta þótti allt of hægur taktur að mati ýmissa líf­eyr­is­sjóða. Í umsögn Lands­­sam­­taka líf­eyr­is­­sjóða um drögin kom fram að djúp­­stæð óánægja væri meðal full­­trúa þeirra sjóða sem væru þegar komnir nálægt núgild­andi þaki með hvers hægt ætti að rýmka heim­ild­irn­­ar. Kallað var eftir því að hækka heim­ild­ina strax um næstu ára­­­mót og hækka hana um tvö til þrjú pró­­­sent­u­­­stig á ári þangað til að 65 pró­­­sent mark­inu yrði náð. Ef farið hefði verið að ítr­­­ustu kröfum sjóð­anna myndi það tak­­­mark nást í árs­­­lok 2027 að óbreytt­u.

Þegar frum­varpið var lagt fram í apríl síð­ast­liðnum hafði verið gerð sú breyt­ing á því að heim­ildin yrði hækkuð um 1,5 pró­sentu­stig á árunum 2024, 2025 og 2026 og yrði þannig 54,5 pró­sent í lok síð­asta árs­ins. Það frum­varp náði ekki í gegn fyrir þing­lok snemm­sum­ars en er nú lagt fram að nýju með sama upp­takti í rýmkun heim­ilda.

Í umsögn sem Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða skil­aði um frum­varpið í maí síð­ast­liðnum kom fram að breyt­ing­arnar sem gerðar höfðu verið frá því að drögin voru birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda væru til bóta, en að afstaða sam­tak­anna hefði hins vegar ekk­ert breyst. Þau teldu áfram sem áður að ganga mætti hraðar í þessum efnum enda liggi fyrir að rýmkunin varði aðeins nokkra sjóði. Aðrir séu enn vel undir núgild­andi mörk­um.

Hætta á ruðningsáhrifum og bólumyndun

Í umsögn Lands­samtaka lífeyris­sjóða um frum­varpið í vor sagði að full­­­trúar þeirra sjóða sem væru næst hámarks­­­hlut­­­falli eigna erlendis teldu ein­fald­­­lega að boðuð skref væru allt of var­­­færin og ná yfir of langt tíma­bil. Afar brýnt væri að fara hraðar í breyt­ingar „með hags­muni sjóð­­­fé­laga að leið­­­ar­­­ljósi“.

Í umsögn­inni sagði að ef „hömlur á fjár­­­­­fest­ingar í erlendum gjald­miðlum gera það að verkum að stórir sjóðir neyð­­­ast til að fjár­­­­­festa í inn­­­­­lendum eignum umfram það sem þeir telja æski­­­legt út frá hags­munum sinna sjóð­­­fé­laga verður að sama skapi tals­verð hætta á ruðn­­­ings­á­hrifum og bólu­­­myndun á inn­­­­­lendum eigna­­­mark­aði sem getur leitt til þess að inn­­­­­lend eigna­­­söfn líf­eyr­is­­­sjóða verði að ein­hverju leyti ósjálf­­­bær til fram­­­tíð­­­ar­“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár