Tryggja þurfi að „framvegis rati umframorka og ný orkuöflun til orkuskipta“

Þing­flokks­formaður Vinstri grænna segir að ríkja þurfi sátt um nýjar virkjanir og að áður en til þeirra komi þurfi að leita „allra leiða til þess að spara og fara betur með þá orku sem þegar er framleidd“.

Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna.
Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna. Mynd: Aðsend

„Sagan segir okkur að við höfum oft farið óðslega fram í orkuöflun gagnvart viðkvæmri og einstakri náttúru landsins. Við ætlum sannarlega að byggja upp grænt og kolefnis­hlutlaust samfélag og ná fullum orku­skiptum fyrir árið 2040. En það þarf að ríkja sátt um nýjar virkjanir og áður en kemur til þeirra þurfum við að leita allra leiða til þess að spara og fara betur með þá orku sem þegar er framleidd, bæta nýtingu í virkjunum sem þegar hafa verið reistar og takmarka orkutap í orku­kerfinu en ekki einungis horfa til hagnaðar eigenda orku­fyrir­tækjanna í krónum talið.“

Þetta skrifar Orri Páll Jóhannsson, þing­flokks­formaður Vinstri grænna í grein á Vísi í morgun. Kjarninn hefur undan­farið fjallað um hina rúmlega fimm ára gömlu tillögu að þriðja áfanga ramma­áætlunar sem verður í fjórða sinn lögð fram á Alþingi í lok mars. Tilefni umfjöllunarinnar er sú að dagsetning á fram­lagningu þings­ályktunar­tillögunnar hefur verið ákveðin og einnig sú að í stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar frá því nóvember er að finna loforð um að lokið verði við þriðja áfanga ramma­áætlunar. Því er hins vegar bætt við, í sömu setningu, að kostum í biðflokki verði fjölgað. Frekari útskýringar hafa stjórn­völd ekki gefið á hvað standi til og spurningum Kjarnans til umhverfis­ráðherra hefur enn ekki verið svarað.

Í kjölfar birtingar stjórnar­sáttmálans hafa því vaknað ýmsar spurningar um hvernig ríkis­stjórnin hyggst fjölga kostum í biðflokki en verði það gert í þinglegri meðferð tillög­unnar þýðir það væntanlega að kostir verði færðir úr annað hvort verndar­flokki eða nýtingar­flokki í þann flokk. Nema að hvort tveggja sé. Hægt er að hreyfa við flokkuninni svo lengi sem Orku­stofnun hafi ekki gefið út virkjana­leyfi fyrir kosti í nýtingar­flokki eða svæði í verndar­flokki hafi verið friðlýst.

Í stjórnar­sáttmála er einnig kveðið á um algjöra endur­skoðun laganna sem ramma­áætlun byggir á. Hvort þriðji áfanginn verði hins vegar afgreiddur með einhverjum hætti áður en að því kemur, mun skýrast á næstunni.

Hugsa þurfi áratugi fram í tímann

Orri Páll skrifar í grein sinni að okkur beri að fara vel með náttúru landsins og orkuna sem eru verðmæt en takmörkuð gæði. Því þurfi að „hugsa lausnir marga áratugi fram í tímann en ekki til skamms tíma“.

Hann skrifar að þegar fram í sæki muni skorta raforku til þess að mæta stærstu áskorun samtímans; loftslags­breytingum. Til þess að stemma stigu við þeim þurfum við m.a. að hraða orku­skiptum. „En höfum í huga að þó svo það muni þurfa að afla frekari orku vegna orku­skipta þegar fram í sækir, eins og forstjóri Lands­virkjunar sagði í nýlegu viðtali, þá erum við að horfa til næstu áratuga í því samhengi. Við ætlum okkur að hafa náð fullum orku­skiptum eigi síðar en árið 2040 og því þurfum við að taka öll skref af vel yfirlögðu ráði, leggja hugmynda­fræði sjálf­bærrar þróunar til grund­vallar og treysta náttúru­vernd.“

Tekur undir með orkumálastjóra

Hann segir brýnt að við komum okkur saman um forgangs­röðun í hvað þurfi orku og þá hversu mikillar orku þurfi að afla til viðbótar. Orkumála­stjóri fjallaði um einmitt þetta í grein á Vísi nýverið þar sem hún benti á að það væri ekki gefið að aukin orku­framleiðsla eða fjár­festingar í flutnings­kerfinu myndu skila sér beint í auknum árangri í orku­skiptum. Krafan á orku­fyrirtæki að hámarka hagnað í þágu eigenda sinna færi ekki endilega saman með því að íbúum og smærri fyrir­tækjum á köldum svæðum séu tryggð raforka. „Ég tek því heilshugar undir með orkumála­stjóra sem segir þörf á að kort­leggja orku­markaðinn og skapa laga­umgjörð sem tryggi að framvegis rati umfram­orka og ný orkuöflun til orku­skipta,“ skrifar Orri Páll. „Þannig má tryggja að við náum markmiðum okkar um að verða óháð jarðefna­eldsneyti og kolefnis­hlutlaus árið 2040.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár