Samtök namibískra fjölmiðlamanna gagnrýna framferði Samherja

Ófrægingar­herferð sjávar­útvegs­fyrir­tækisins Samherja gegn Helga Seljan er harðlega gagnrýnd í yfir­lýsingu NAMPU, fagfélags namibísks fjölmiðla­fólks.

Helgi Seljan fréttamaður fær stuðning frá namibískum fjölmiðlamönnum, í yfirlýsingu samtaka þeirra í dag.
Helgi Seljan frétta­maður fær stuðn­ing frá namibískum fjöl­miðla­mönnum, í yfir­lýs­ingu sam­taka þeirra í dag. Mynd: Kveikur

Fagfélag fjölmiðla­fólks í Namibíu (NAMPU) lýsir yfir áhyggjum af þróun mála á Íslandi, í yfir­lýsingu sem félagið sendir frá sér í dag, á alþjóð­legum degi fjölmiðla­frelsis.

Namibísku samtökin hvetja vinnu­veitendur fjölmiðla­fólks hér á landi, sem og yfirvöld sem hafa frelsi fjölmiðla á sínu málefna­sviði, til þess að gera sitt ýtrasta til að tryggja að frétta­menn geti unnið að almannahags­munum með því að afhjúpa spillingu.

Í yfir­lýsingunni er aðför sjávar­útvegs­fyrir­tækisins Samherja að íslenskum frétta­mönnum, sérstak­lega Helga Seljan, mótmælt harðlega. Einnig eru viðbrögð fyrir­tækisins við frétta­flutningi, meðal annars með mynd­böndum þar sem ráðist er að æru frétta­manna og beinni áreitni, fordæmd.

„Fyrir­tækið, þrátt fyrir að hafa rétt til þess að svara fyrir ásakanir gegn því, ætti ekki að reyna að bæla opinbera grann­skoðun á hlutverki þess í Fishrot-skandalnum,“ segir um Samherja í yfir­lýsingu NAMPU.

Samtökin segja einnig að blaðamenn eigi að hafa rétt til þess að verja sig gagnvart árásum Samherja á sínum eigin samfélagsmiðlarásum, en sem kunnugt er kærði Samherji 11 frétta- og dagskrár­gerðarmenn á Ríkis­útvarpinu til siða­nefndar fyrir ummæli um Samherja á samfélags­miðlum.

Helgi Seljan var einn talinn hafa brotið gegn siða­reglunum með ummælum á samfélags­miðlum og þeirri niður­stöðu verður ekki áfrýjað. Stjórn­endur Ríkis­útvarpsins hafa sagt að niður­staðan komi ekki til með að hafa nein áhrif á störf Helga fyrir ríkis­fjöl­miðilinn og unnið er að því að endur­skoða siða­reglur RÚV.

Samherji hefur hins vegar krafist þess að Helgi fjalli ekki frekar um málefni fyrir­tækisins og meðal annars keypt auglýsingu í öðrum íslenskum fjölmiðli, mbl.is, þar sem stjórn­endur ríkis­fjöl­miðilsins eru sakaðir um ábyrgðar­leysi.

Birting þeirrar auglýsingar hefur verið gagnrýnd af hálfu stjórnar Blaðamanna­félags Íslands. „Á fjöl­miðlum eru skörp skil milli auglýsinga­deilda og ritstjórna en með þessari auglýsingu var stigið yfir þá línu því herferð Samherja er ekki aðeins herferð gegn einum frétta­manni eða einni ritstjórn heldur beinist hún gegn öllum blaða­mönnum og öllum ritstjórnum, þar á meðal blaða­mönnum á mbl.is,“ sagði í bréfi stjórnar félagsins til framkvæmda­stjóra og auglýsinga­stjóra Árvakurs, útgefanda mbl.is.

Í kjölfarið hefur trúnaðar­maður Blaðamanna­félagsins hjá Árvakri sagt sig frá því hlutverki.

Namibísku samtökin hvetja fjölmiðla­fólk um allan heim, sérstak­lega í Evrópu, til þess að styðja íslenska kollega sína og fordæma ógnanir í þeirra garð af hálfu fyrir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár