Segir af sér sem trúnaðarmaður Blaðamannafélagsins á Morgunblaðinu

Trún­að­ar­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands á Morg­un­blað­inu hefur ákveðið að hætta sem slíkur. Ástæðuna segir hann vera „afskipti stjórnar BÍ af aug­lýs­inga­birt­ingu á mbl.is“. Telur hann að stjórnin hafi brotið gegn lögum eigin félags.

Guðni Ein­ars­son hefur sagt af sér sem trún­að­ar­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands (BÍ) á Morg­un­blað­inu. Þetta kemur fram í bréfi Guðna sem stjórn BÍ barst í morgun og greint er frá á vef Blaða­manna­fé­lags­ins í dag.

„Ástæða þess eru afskipti stjórnar BÍ af aug­lýs­inga­birt­ingu á mbl.is. Með þeim fer stjórn félags­ins langt út fyrir sitt hlut­verk að mínu mati og það hvorki get ég né treysti mér til að verja sem full­trúi félags­ins á mínum vinnu­stað,“ segir Guðni.

Forsagan er sú að for­maður BÍ, Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, sendi bréf um helg­ina, fyrir hönd stjórnar BÍ, á Harald Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóra Árvakurs, og Magnús Krist­jáns­son, þar sem stjórnin lýsti óánægju með birt­ingu aug­lýs­ingar Samherja sem hún segir að sé „hluti af ófræg­ing­ar­her­ferð gegn Helga Seljan og félögum hans í Kveik“.

[links]Í bréfi stjórnar BÍ segir að á fjöl­miðlum séu skörp skil milli aug­lýs­inga­deilda og rit­stjórna en með þess­ari aug­lýs­ingu hafi verið stigið yfir þá línu því her­ferð Samherja sé ekki aðeins her­ferð gegn einum frétta­manni eða einni rit­stjórn heldur bein­ist hún gegn öllum blaða­mönnum og öllum rit­stjórnum, þar á meðal blaða­mönnum á mbl.is.

Telur að stjórnin hafi brotið gegn lögum eigin félags

Guðni bendir á í bréfi sínu til stjórnar að sam­kvæmt lögum félags­ins sé til­gangur þess að gæta „fag­legra og stétt­ar­legra hags­muna félags­manna í hví­vetna“ (1. gr.). Einnig að „standa vörð um prent- og tján­ing­ar­frelsi“ (1.2 b gr.) og að hafa „áhrif á opin­bera stefnu og sam­fé­lags­lega umræðu um fjöl­miðlun og tján­ing­ar­frelsi“ (1.2 d). Síðast en ekki síst: „Að standa vörð um rit­stjórn­ar­legt frelsi og sjálf­stæði fjöl­miðla“ (1.2 e).

Spy hann hvort stjórnin hafi verið að gæta hags­muna allra félags­manna sinna eða að standa vörð um prent- og tján­ing­ar­frelsi. „Var hún að slá skjald­borg um sjálf­stæði fjöl­miðla? Með ákvörðun sinni tel ég að stjórnin hafi brotið gegn lögum eigin félags. Hún ætti að sjá sóma sinn í að draga gagn­rýni sína til baka og að ein­beita sér að til­gangi félags­ins.“

Segir Guðni að þegar hann byrj­aði í blaða­mennsku hafi hann lært að „kína­múr“ væri á milli rit­stjórnar og aug­lýs­inga­deildar. Blaða­menn skiptu sér ekki af aug­lýs­ingum og skrif­uðu ekki aug­lýs­inga­efni og öfugt. Þessi regla hafi almennt gilt á rit­stjórnum sem hafa ein­hvern metnað og sjálfs­virð­ingu. Telji menn að til­teknar aug­lýs­ingar séu meið­andi eða ósannar þá séu leiðir til að taka á því, til að mynda fyrir dóm­stólum.

„Ekki þarf að fjöl­yrða um erfið rekstr­ar­skil­yrði allra ann­arra fjöl­miðla en Rík­is­út­varps­ins, sem árlega fær hátt með­lag frá skatt­greið­endum auk þess að vera fyr­ir­ferð­ar­mikið á aug­lýs­inga­mark­aði. Aðrir útgef­endur reiða sig að miklu leyti á aug­lýs­inga­tekjur og sumir á áskrift­ar­tekjur að auki. Það að stétt­ar­fé­lag blaða­manna skipti sér af tekju­öflun ein­stakra útgef­enda er í mínum huga langt fyrir utan verk­svið þess,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár