Framsóknarmenn náðu ekki að klára „heiðarlegan fund“

Þing­flokkur Framsóknar­flokksins fundaði um mál formanns flokksins, sem leyndi hagsmunum, var staðinn var að ósannindum í viðtali, gekk út úr því og reyndi að stöðva birtingu þess. Forseti Íslands er á leiðinni til landsins. Fjármála­ráðherra missti af flugi frá Flórída.

Sigmundur Davíð kemur af fundi
Sig­mundur Davíð kemur af fundi Stjórn­ar­and­staðan hefur farið fram á afsögn for­sæt­is­ráð­herra. Hann hefur lýst því yfir að hann voni að stjórn­ar­and­staðan guggni ekki á að lýsa van­trausti á sig. Mynd: Kristinn Magnússon

„Við áttum heiðar­legan fund en náðum ekki að klára hann,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, um fund þing­flokks Framsóknar­flokksins sem staðið hefur verið yfir í morgun, þar sem rætt var mál formanns flokksins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar.

Sigmundur sagði ósatt um aðkomu sína í aflandsfélagi í viðtali sem sýnt var í heimildar­mynd á RÚV í gær. Hann gekk í kjölfarið út úr viðtalinu og sagði það vera „fyrir neðan allar hellur“. Í kjölfarið reyndi hann að stöðva birtingu þess.

Náðu ekki að klára fund
Náðu ekki að klára fund Sigurður Ingi Jóhannsson sagði að þing­flokkur Framsóknar­flokksins myndi halda áfram að funda eftir hádegi.

„Við munum halda áfram á eftir,“ segir Sigurður Ingi. Spurður hvað var rætt á fundinum segir Sigurður Ingi: „Ég held að það liggi ljóst fyrir“.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðar­maður Sigmundar, sagði eftir fundinn að Sigmundur myndi ekki ræða við fjölmiðla fyrr en eftir þingfund í dag. Hins vegar fór Sigmundur í viðtal við Stöð tvö nokkrum mínútum síðar. 

Sigmundur Davíð boðar að hann muni svara fyrir sig á Alþingi í óundirbúnum fyrir­spurnum sem hefjast klukkan 15. 

Bjarna seinkar á leið frá Flórída

Forseti Íslands er á leiðinni til landsins úr ferðalagi erlendis, þar sem hann dvaldi á ótilgreindum stað í einka­erindum. Forseti hefur það hlutverk samkvæmt stjórnar­skrá að setja saman ríkis­stjórn.

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra missti af flugi á leiðinni frá Flórída þar sem hann á orlofshús.

Stjórnar­andstaðan hefur í morgun átt viðtöl við fjölmiðla í húsnæði Alþingis. Klukkan 12 hefst fundur í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd Alþingis vegna vanhæfis forsætis­ráðherra. 

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jóns­dóttir Þingmaður Pírata í viðtali við fjölmiðla í morgun.

Svaraði fyrir sig fyrir fram

Á sama tíma hefur þing­flokkur Framsóknar­flokksins fundað með formanni sínum vegna viðtalsins. Sigmundur skráði ekki hagsmuni sína eins og honum bar í hagsmuna­skráningu Alþingis. Félag Sigmundar og eiginkonu hans gerði kröfu upp á hálfan milljarð króna í slitabú bankana, en hann seldi eiginkonu sinni sinn hlut í félaginu daginn áður en ný lög um aflandsfélög tóku gildi.

Sigmundur hefur ekki rætt við fjölmiðla frá því viðtal hans við sænskan blaðamann og Jóhannes Kr. Kristjánsson var birt í gærkvöldi. Hann svaraði hins vegar fyrir sig fyrirfram í blogg­færslu í gær, þar sem hann gagnrýndi Ríkis­útvarpið harðlega, gagnrýndi fortíð pistla­höfundar, gagnrýndi tíma­setningu þáttarins, sagði Stundina okkar hafa verið gerða að „pólitískum áróðurs­þætti“ og sagði að „dreifing óhróðurs“ um hann væri „grund­völlur að nýrri útrás“.

Fjallað hefur verið um aflandsfélag forsætis­ráðherra um allan heim í dag og gærkvöldi.

Þing­fundur hefst klukkan 15 í dag og hefur verið boðað til mótmæla klukkan 17. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár