Sean Spicer hættur sem fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins

Spicer var fjölmiðla­fulltrúi Trumps í sex mánuði og var margsinnis uppvís að augljósum rang­færslum. Hann hættir vegna ágrein­ings við nýskipaðan yfirmann sinn.

Sean Spicer stjórnar blaðamannafundi.
Sean Spicer stjórnar blaða­manna­fundi. Mynd: EPA

Hinn umdeildi fjölmiðla­fulltrúi Donalds Trump, forseta Banda­ríkjanna, hefur sagt upp störfum eftir að hafa gengt starfinu í sex mánuði. Bandaríska dagblaðið The New York Times greinir frá þessu.

Spicer er sagður hafa sagt starfi sínu lausu vegna djúpstæðs ágrein­ings við nýskipaðan yfirmann upplýsinga­deildar Hvíta hússins, Anthony Scaramucci.

Trump skipaði Scaramucci í stöðu yfirmanns Spicer klukkan 10 að staðar­tíma í dag, þegar klukkan var 14 hér á Íslandi. Tveimur tímum síðar sagði New York Times fréttir af því að Spicer væri hættur.

Forsetinn hafði beðið Spicer um að gegna starfinu áfram en fjölmiðla­fulltrúinn sagðist halda að ráðningin væri mikil mistök.

Sarah Huccabee Sanders, aðstoðar­maður Spicers, hefur komið fram fyrir hönd Hvíta hússins að undan­förnu í stað Spicers.

Fjölmiðla­fullrúinn hefur verið á milli tannana á fjöl­miðlum síðan hann tók við starfinu í janúar. Á sínum fyrsta fjölmiðla­fundi lýsti hann því meðal annars yfir að aldrei hefðu fleiri áhorf­endur fylgst með vígslu forseta í Washington og þegar Trump var svarinn í embætti. Það hefði ekki getað verið fjarri sann­leikanum eins og sýnt var fram á. Spicer þráaðist hins vegar við.

Scaramucci kemur úr fjármála­heiminum í New York.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár