Kristján Þór: Viðbrögð mín við mótmælafundinum engin sérstök

Sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra sagðist á Alþingi í dag ætla að sinna sínu pólitíska starfi sem og embættis­skyldum í ráðuneytinu með nákvæmlega sama hætti og áður og af bestu samvisku.

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júl­í­us­son Mynd: Bára Huld Beck

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, beindi fyrir­spurn til sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, Kristján Þórs Júlíussonar, í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma í dag en tilefnið var mótmæla­fundur sem haldinn var um helgina.

Stjórn­ar­skrár­fé­lag­ið, Efl­ing stétt­ar­fé­lag, Öryrkja­banda­lag Íslands, Sam­tök kvenna um nýja stjórn­ar­skrá, Gegn­sæi, sam­tök gegn spill­ingu, og hópur almennra borg­ara og félaga­sam­taka kröfðust þess sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segði taf­ar­laust af sér emb­ætti, að Alþingi lög­festi nýja og end­ur­skoð­aða stjórn­ar­skrá sem lands­menn sömdu sér og sam­þykktu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2012 og að arður af nýt­ingu sam­eig­in­legra auð­linda lands­manna rynni í sjóði almenn­ings til upp­bygg­ingar sam­fé­lags­ins og til að tryggja mann­sæm­andi lífs­kjör allra. Á fimmta þúsund manns mættu á fundinn.

Halldóra spurði hver viðbrögð ráðherra væru við fundinum og þeim kröfum sem þar voru settar fram.

Kristján Þór svaraði og sagði að hann hefði þegar rætt þetta mál og að viðbrögð hans við mótmæla­fundinum væru engin sérstök að öðru leyti nema því að hann hygðist vinna sína vinnu með sama hætti og hann hefur gert. „Ég ætla að sinna mínu pólitíska starfi sem og embættis­skyldum í ráðuneytinu með nákvæmlega sama hætti og af bestu samvisku. Gæta að hæfi – hvort heldur sem um er að ræða sérstök mál eða þvíumlíkt. Og leggja mig fram um að sinna þeim verkum sem mér hefur verið treyst og trúað fyrir. Það eru viðbrögð mín við þessum fundi,“ sagði hann.

Halldóra kom þá aftur í pontu og benti á að þau hefðu ekki átt samtal um nákvæmlega þetta mál í síðustu viku þar sem mótmæla­fundurinn hefði verið um helgina. „Þarna komu saman rúmlega fjögur þúsund manns og lýstu yfir vantrausti á ráðherra,“ sagði hún og spurði hvort afstaða Kristjáns Þórs hefði breyst frá því hann sagði við hana í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma í síðustu viku að hann fyndi fyrir trausti. „Hefur afstaða hans breyst? Finnur hann ennþá að honum sé treyst? Og ef ekki hverju margir þurfa að lýsa yfir vantrausti á ráðherra til þess að afstaða hans breytist?“ spurði hún.

Finnur bæði fyrir trausti og vantrausti

Kristján Þór svaraði og sagði að hann fyndi bæði fyrir trausti og vantrausti eins og „við stjórn­málamenn gerum iðulega í okkar störfum.“ Hann sagði að störf stjórn­málamanna væru umdeild, við því væri ekkert að segja. „Við leggjum verk okkar í dóm kjósenda, oftast nær á fjögurra ára fresti og ég treysti mér fyllilega til þess að standa við og undir því trausti sem mér hefur verið sýnt til þess að gegna störfum Norðaustur­kjördæmi en um leið að taka þátt í störfum Alþingis fyrir alla landsmenn,“ sagði hann.

„Ég ætla bara rétt að vona það að störf stjórn­málamanna á Íslandi verði aldrei á þann veg að þeir verði ekki umdeildir. En ég skal vera fyrstur manna til að viðurkenna það að ég hef engan mæli­kvarða á það sérstak­lega, sem hátt­virtur þingmaður virðist hafa hér, hvenær það er kominn tiltekinn fjöldi einstaklinga sem hefur ekki traust á störfum þingmanns. Ég er ekki þeirrar gerðar að hafa slíka talningu á reiðum höndum og þætti vænt um það að hátt­virtur þingmaður gæti upplýst mig um þessa undratölu sem hún virðist hafa undir höndum,“ sagði ráðherrann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár