Lögmenn Trumps greina frá viðskiptum hans við Rússa

Engin gögn hafa verið birt, en bréf tveggja lögmanna Trumps hefur verið birt.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Tveir skatta­lögfræðingar Donalds Trumps Bandaríkja­forseta, Sheri Dillon og William Nelson, hafa birt bréf á vef Hvíta hússins, þar sem greint er frá tengslum Trumps við Rússa á undan­förnum tíu árum. Engin gögn hafa verið birt ennþá. Samkvæmt bréfinu eru efnahagsleg tengsl Rússa við Trumps bundin við peningalegar greiðslur sem hann fékk vegna fegurðar­samkeppninnar Miss Universe sem haldin var í Moskvu 2013, en Trump hefur lengi verið eigandi keppninnar.

Þá seldi hann glæsihýsi við Palm Beach til rússnesk auðkýfings árið 2008 og fyrirtæki hans hefur síðan selt Rússum aðgang að golf­völlum í hans eigu.

Að öðru leyti eru tengslin sögðu engin, samkvæmt skatta­skýrslum hans. Í umfjöllun Washington Post kemur fram að lögmennirnir hefðu ekki viljað afhenda gögn um frekari viðskipti Trumps.

Trump sagði í dag að það kæmi til greina að hætta með upplýsinga­fundi fyrir fjölmiðla í Hvíta húsinu.

Mikil pressa er nú á forsetanum, eftir að hann rak James Comey, fyrr­verandi yfirmann FBI, skömmu eftir að hann hafði óskað eftir því við dómsmála­ráðuneytið að fá frekri fjár­veitingar vegna rann­sóknar alríkis­lögreglunnar á tengslum Rússa við framboð Donalds Trumps.

Trump sagðist í gær hafa rekið Comey, einn og óstuddur, og að hann hefði fyrir löngu verið búinn að ákveða að gera það. Hann hafði stuðning dómsmála­ráðuneytisins við ákvörðunina, en formlega var það Jeff Sessions, dómsmála­ráðherra, sem lagði það til að hann yrði rekinn.

Sessions sjálfur er til rann­sóknar hjá FBI, en staðfest hefur verið með gögnum að hann hitti Sergey Kislyak, sendi­herra Rússa í Washington, í tvígang á fundum í aðdrag­anda kosninganna í fyrra. Sessions hafði áður neitað því að hafa nokkru sinni átt í samskiptum við Rússa, og lét þau orð meðal annars falla eiðsvarinn frammi fyrir þingnefnd Banda­ríkjaþings.

FBI hefur staðfest að rann­sóknin á tengslum Rússa við framboð Trumps sé í fullum gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár