Sakaði Brynjar um „viðstöðulaust áreiti“ gagnvart brotaþolum Róberts Downey

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, gagnrýndi Sjálfstæðis­flokkinn harðlega: „Vinnur markvisst að því að bæta hag hinna efnameiri á kostnað hinna efnaminni“

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, segir stór­merkilegt að forsætis­ráðherra hafi staðfest í stefnu­ræðu sinni að skatt­byrði tekju­lægstu fjöl­skyldna hafi þyngst frá árinu 1998.

„Hann stað­festir hér í heyranda hljóði að helsta áherslumál Sjálfstæðis­flokksins í áratugi, lægri skattar, er ekki ætlað þeim sem verst hafa það, heldur einungis hinum betur settu. Það er svosem gott að fá það staðfest, sem margir hafa löngum vitað, sem er að Sjálfstæðis­flokkurinn vinnur markvisst að því að bæta hag hinna efnameiri á kostnað hinna efnaminni,“ sagði Þórhildur í eldhúsdags­umræðunum í kvöld.

„Verra er að fylgjast með forsætis­ráðherra og flokki hans halda áfram sínum blekkingar­leik gagnvart þjóðinni og saka þá um geðveiki, sem ekki trúa möntru þeirra um að allir landsmenn sitji við sama gnægta­borðið í hagvaxtar­veislunni þeirra. Þessi gamal­gróna taktík Sjálfstæðis­flokksins er vel þekkt og þaulreynd aðferð yfirgangs­seggja í valda­stöðu, í raun andlegt ofbeldi  sem felst í því að gefa þolandanum viðstöðu­laust rangar upplýsingar með það að markmiði að fá hann til þess að efast um eigið minni, skynjun og skynsemi – efast um eigin geðheilsu.“ 

Þá sagði hún aðferða­fræði Sjálfstæðis­flokksins hafa smitast yfir á samstarfs­flokkana í ríkis­stjórn. Þeir sjái það sem eitt af sínum mikil­vægustu verkum að sannfæra þjóðina um að hún skilji ekki neitt og sé ósann­gjörn. „Það er sko ekkert verið að einkavæða heilbrigðis­kerfið, segir hæstvirtur heilbrigðis­ráðherra á meðan hann klippir á borða í Klíníkinni og mokar fé í einka­geirann í fjárlögum þessa árs. Erfiðara finnst mér að segja til um viðhorf stjórnar­liða í heild til þessarar aðferða­fræði kúgarans, hvort þeir láti blekkjast af síendurteknum og vísvitandi rang­færslunum eða taki virkan þátt í að halda þeim á lofti. Þó má segja að viðstöðu­laust áreiti hæstvirts þingmanns Brynjars Níels­sonar gagnvart brota­þolum Róberts Árna Hreiðars­sonar um að það hafi nú ekkert verið brotið svo illa á þeim sé ágætt dæmi um þessa ógeð­felldu taktík.“ 

Þórhildur segir stjórnar­liða hafa þagað í kjölfar þess að í ljós kom að ráðherra hafði ranglega haldið því fram að fjöl­miðlar og brota­þolar ættu ekki eiga rétt á upplýsingum um máls­meðferð við veitingu uppreist æru. „Stjórnar­liðum finnst líka allt í lagi að dómsmála­ráðherra hreyti því í almenning að ákall hans um mannúð­lega meðferð tveggja ungra stúlkna á flótta sé bara eitthvað mál sem dúkki upp í umræðunni fyrir tilviljun  og henni detti ekki í hug að gera neitt í,“ sagði hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár