Áslaug Friðriksdóttir bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna á Ísafirði

Fyrr­verandi borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokks í Reykjavík verður bæjar­stjóri í Ísafjarðarbæ ef flokkurinn nær að mynda meirihluta þar eftir rúma viku.

Áslaug Friðriksdóttir.
Áslaug Frið­riks­dóttir. Mynd: Oddur Atlason

Áslaug María Friðriks­dóttir, fyrr­verandi borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, er bæjarstjóra­efni Sjálfstæðis­flokks í Ísafjarðarbæ kosningunum sem fara fram eftir rúma viku. Frá þessu er greint á vef Bæjarins besta.

Þar er haft eftir Áslaugu að hún hafi ekki þurft að hugsa sig lengi um þegar leitað var til hennar. „Eftir stuttan umhugsunar­frest fann ég að bæði hugur og hjarta sögðu já, enda eru taugarnar vestur afar sterkar og hlýjar. Mér finnst líka að fram­bjóðenda­hópurinn sé að slá á nýja strengi, er ferskur og fram­sækinn en skilur einnig að gott samstarf er forsenda framfara enda leggja þau áherslu á bætt samskipti og samráð við íbúa á svæðinu. Ég er þess fullviss að ég geti lagt margt gott til málanna.“

Sjálfstæðis­flokkurinn er sem stendur í meirihluta­samstarfi við Framsóknar­flokkinn í Ísafjarðarbæ. Flokkurinn er með þrjá af níu bæjar­fulltrúum. Sá meirihluti réð Guðmund Gunnarsson, nú viðskipta­ritstjóra Frétta­blaðsins, sem bæjar­stjóra eftir síðustu kosningar en sagði honum upp störfum 2020. Núverandi bæjar­stjóri er Birgir Gunnarsson. Hann réð sig sem framkvæmda­stjóra rekstrar­stofu Þjóð­kirkjunnar fyrr á þessu ári og hefur þar störf eftir komandi kosningar.

Áslaug var á meðal þeirra sem sóttist eftir því að verða oddviti Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík fyrir kosningarnar 2018, en laut í lægra haldi fyrir Eyþóri Arnalds. Hún sótt­ist í kjölfarið eftir sæti neðar á fram­boðs­list­anum en var ekki boðið neitt sæti.

Í við­tali við Mann­líf vorið 2018 sagðist Áslaug hafa orðið fyrir von­brigð­um, en hún hafði talað fyrir þétt­ingu byggð­ar, lýst vilja til að ræða borg­ar­línu og viljað starfa með meiri­hlut­anum í Reykja­vík að þeim málum sem hún hefur getað séð sam­eig­in­legan flöt á. „Með þessu tekur flokk­ur­inn þá áhættu að höfða til þrengri hóps en hann hefði ann­ars gert nema að ein­hverjir á fram­boðs­list­anum tali til þess hóps. Ég er ekki sú eina sem er á þess­ari mál­efna­línu og veit að meðal nýrra fram­bjóð­enda er fólk sem er sam­mála mér um margt. Ég vona að þeir fram­bjóð­endur fylgi sann­fær­ingu sinni og láti ekki þagga niður í sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár