Náttúran í manninum

Dans blandast saman við ljós, hljóð og meira að segja ilm í Flóðreka, nýju verki hjá Íslenska dans­flokknum sem unnið er í samstarfi við Jónsa í Sigur Rós. Höfundurinn, Aðal­heiður Halldórs­dóttir, segir marga Íslendinga hræðast dans­sýningar en hvetur fólk til að sleppa takinu og leyfa sér að upplifa.

Af æfingu á Flóðreka
Af æfingu á Flóðreka Sýningin er inn­blásin af verki sem Jónsi setti upp í Hafn­ar­húsi í fyrra. Mynd: Víkingur

Flóðreka, ný sýning Íslenska dans­flokksins, verður frumsýnd 8. nóvember og mega áhorf­endur búast við óhefðbundinni upplifun sem snertir á fleiri skilningar­vitum en leikhús­gestir eiga að venjast.

Aðal­heiður Halldórs­dóttir, höfundur sýningarinnar, þróaði hana upp úr verki sem tónlistar­maðurinn Jónsi, gjarnan kenndur við Sigur Rós, setti upp í fyrra. „Sýningin hans Jónsa, Flóð, sem var sett upp í Hafnar­húsinu og víðar, samanstendur af ljósi sem er forritað eftir hljóðmynd og ilmi,“ segir Aðal­heiður. „Ég vann með dönsurum í viku og við gerðum einhvers konar innsetningu inni í verkinu hans sem var dálítið spennandi. Af því að það virkaði vel var ákveðið að vinna heila sýningu og núna er hún komin inn í leikhúsið.“

Blaða­manni finnst á þessum tíma­punkti eins og honum hafi misheyrst. Ilmi? Eru þá öll skilningar­vitin örvuð á þessari sýningu?

„Já, ætli það ekki? Nema snerting kannski, við ætlum ekki að snerta áhorfendurna,“ segir Aðal­heiður og …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár