Kafsnjór og háski á Vestfjörðum

Flestir vegir lokaðir. Snjór í hné eftir nóttina.

Allt á kafi
Allt á kafi Mynd: Ólöf Brynjarsdóttir

Á Vestfjörðum en kafsnjór þessa dagana. Vegir eru víða lokaðir og ófært á milli byggðar­laga. Þannig er búið að loka veginum um Súða­víkurhlíð og Kirkju­bólshlóð milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Steingríms­fjarðar­heiði er einnig kolófær. Snjó­flóðahætta er á þessum vegum. Sömu sögu er að segja á sunnan­verðum Vestfjörðum þar sem vegir eru lokaðir. Snjó­flóðahætta er á Patreks­firði og Tálkna­firði þar sem hús hafa verið rýmd. 

„Það er búið að snjóa rosalega í nótt. Það er illfært innan þorpsins," segir Ólöf Brynjars­dóttir, íbúi á Flateyri, sem beið þess að komast með börn sín á leikskóla. Hún sagði að hnédjúpur snjór væri á staðnum en mokstur í fullum gangi. Ekki er þó snjó­flóðahætta á Flateyri en gríðarlegar og traustar snjó­flóðavarnir ofan við staðinn þar sem mannskætt snjóflóð féll árið 1994. 

Hjá Veður­stofu Íslands fengust þær upplýsingar að ekki muni lægja fyrr en á morgun. Óveðurs­strengur er að ganga inn yfir landið og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár