Leiðarahöfundur Fréttablaðsins leggur til að Viðreisn renni inn í Samfylkinguna

Kolbrún Bergþórs­dóttir segir helstu stefnumál Viðreisnar vera stefnumál Samfylk­ing­ar­innar. Eigandi Frétta­blaðsins er á meðal þeirra sem komu að stofnun Viðreisnar fyrir nokkrum árum og hefur lagt flokknum til umtals­verða fjármuni í gegnum tíðina.

Helgi Magnússon er aðaleigandi og stjórnarformaður Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins.
Helgi Magn­ús­son er aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins. Mynd: Samsett

„Kannski ætti Viðreisn að sýna djörfung og dug, ganga hughraust alla leið og sameinast Samfylkingunni. Viðreisn kæmi inn í Samfylkinguna með nokkurn veginn sömu áherslur og þar eru fyrir, en viðbótin væri vottur af nettri og ljúfri hægri­stefnu, sem þarf líka að finnast í stórum jafnaðar­manna­flokki. Verri sameiningar en þessi hafa vissulega átt sér stað í íslenskum stjórn­málum.“

Þetta skrifar Kolbrún Bergþórs­dóttir í leiðara sem birtist í Frétta­blaðinu í dag. Viðreisn var formlega stofnaður sem flokkur fyrir sex árum, en tilurð flokksins spratt upp úr óánægju með slit á aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið í febr­úar 2014. Þá klauf hópur alþjóða­sinn­aðra sjálf­stæð­is­manna sig frá flokknum og fór að und­ir­búa nýtt stjórn­mála­afl. Hluti hóps­ins hóf að hitt­ast reglu­lega til að ræða mögu­leik­ann á nýju fram­boði og annar hópur stofn­aði lok­aða grúppu á Facebook undir nafn­inu „Nýi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn“.

Á meðal þeirra voru fjár­sterkir áhrifa­menn úr íslensku atvinnu­lífi og víðar sem hafði fylgt Sjálf­stæð­is­flokknum að málum allt sitt líf. Þessi hópur studdi myndar­lega við stofnun Viðreisnar með fjár­framlögum.

Til þess hóps töld­ust til að mynda Helgi Magn­ús­son og Sig­urður Arn­gríms­son.

Helgi leiddi kaup á útgáfu­félagi Frétta­blaðsins, Torgi, sumarið 2019 og er í dag eigandi að nánast öllu hlutafé í því. Hann er stjórnar­formaður útgáfu­félagsins. Á meðal annarra hluthafa frá upphafi er Sigurður.

Hópurinn hefur sett um 1,5 milljarð króna í kaupverð og hlutafjár­aukningar i Torgi frá því að hann tók við rekstrinum en Torg hefur tapað um milljarði króna á þremur árum.

Segir hlutverk Viðreisnar í stjórnmálum óljóst

Tilefni leiðara­skrifa Kolbrúnar í dag er sú ákvörðun Viðreisnar að ganga í bandalag með Samfylkingu og Pírötum við myndum meirihluta í Reykja­víkurborg. Viðreisn fékk 5,2 prósent atkvæða í nýliðnum borgar­stjórnar­kosningum og einn borgar­fulltrúa kjörinn. Flokkurinn tapaði fylgi milli kosninga og missti einn borgar­fulltrúa. Einungis tveir flokkar sem náðu kjöri í borgar­stjórn fengu færri atkvæði en Viðreisn: Flokkur fólksins og Vinstri græn. Samfylkingin tapaði líka fylgi í borginni, fékk 20,3 prósent atkvæða og fimm borgar­fulltrúa, eða tveimur færri en hún hafði áður. Bandalag flokkanna tveggja og Pírata er sem stendur í viðræðum um myndun meirihluta við Framsóknar­flokkinn. Sá meirihluti yrði sterkur, með 13 borgar­fulltrúa á móti tíu.

Hún segir þá ákvörðun hafa gert það að verkum að nú sé Viðreisn föst þar sem hún kunni best við sig, í námunda við Samfylkinguna. „​​Það er ekki skrýtið því enginn sérstakur munur er á þessum flokkum. Hollusta Viðreisnar í garð Dags B. Eggerts­sonar minnir meira að segja á aðdáun Samfylkingar­fólks á borgar­stjóranum. Dagur hefur vissulega margt sér til ágætis. Hann var farsæll borgar­stjóri og verður vonandi í allra nánustu framtíð formaður Samfylkingarinnar. Enginn yrði betri í því hlutverki. Ætli Samfylkingin sér stóra hluti í fram­tíðinni þarf hún mann eins og Dag til forystu. Sjálf­skipaðar vonar­stjörnur innan þing­flokks Samfylkingar verða að kyngja þeirri staðreynd. Samfylkingin gæti átt bjarta tíma fram undan haldi hún rétt á spilunum.“

Hlutverk Viðreisnar í íslenskum stjórn­málum sé hins vegar orðið óljóst. „Helstu stefnumál þessa litla flokks eru stefnumál Samfylkingarinnar, samanber Evrópumál og sjávarútvegsmál. Það er því ekki skrýtið að Viðreisn skuli nú leita í faðm Samfylkingarinnar. Kannski ætti Viðreisn að sýna djörfung og dug, ganga hughraust alla leið og sameinast Samfylkingunni. Viðreisn kæmi inn í Samfylkinguna með nokkurn veginn sömu áherslur og þar eru fyrir, en viðbótin væri vottur af nettri og ljúfri hægri­stefnu, sem þarf líka að finnast í stórum jafnaðar­manna­flokki. Verri sameiningar en þessi hafa vissulega átt sér stað í íslenskum stjórn­málum.“

Samkvæmt síðustu birtu könnun Gallup um fylgi flokka á landsvísu styðja 13,7 prósent lands­manna Samfylkinguna en 9,6 prósent myndu kjósa Viðreisn ef kosið yrði nú.

Gagnrýndi framsetningu eigins blaðs

Kolbrún skrifaði einnig leiðara 13. maí síðastliðinn, sem vakti líka mikla athygli. Þar gagnrýndi hún skoðana­könnun sem Frétta­blaðið hafði sjálft látið framkvæma, og birt á forsíðu sinni. Í leið­aranum stóð: „Skoð­ana­kann­anir eru ekki kosn­inga­úr­slit. Það var því nokkuð skondið að sjá hvernig fjöl­miðlar slengdu því fram sem stór­frétt og leit­uðu til álits­gjafa þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 16 pró­sent í einni könnun – könnun sem flest bendir til að hafi verið lítið mark­tæk.“

Frétta­blaðið fylgdi könnuninni eftir daginn eftir birtingu hennar með viðtali við tvo stjórnmála­fræðinga þar sem þeir voru fengnir til að túlka niður­stöður hennar.

Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Frétta­blaðsins, sagði í samtali við mbl.is um málið að skoðanir Kol­brún­ar væru stund­um vera skrýtn­ar, en að þær ættu full­an rétt á sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár