Svindl Volkswagen orsakar hrun á sölu í Bandaríkjunum

Þýski bíla­fram­leiðandinn seldi fjórðungi færri bíla í Banda­ríkjunum í nóvember 2015 en hann gerði í sama mánuði árið áður.

Sala á Volkswagen bílum í Banda­ríkjunum hrundi í síðasta mánuði. Alls seldust tæplega 25 prósent færri slíkir bílar í landinu í nóvember 2015 en í sama mánuði árið áður. Ástæðan er einföld: svindl þýska bíla­fram­leiðandans á útblástursprofunum, sem upplýst var um fyrir rúmum tveimur mánuðum, er enn að draga dilkt á eftir sér.

Í september tilkynnti Umhverfis­verndarráð Banda­ríkjanna að Volkswagen hefði búið bíla sína ólöglegum hugbúnaði sem var til þess gerður að svindla á útblásturs­prófunum. Dísel-bílar bíla­fram­leiðandans losa þess vegna 40 sinnum meira af gróðurhúsa­loft­tegundum en leyft er.

Bandarísk stjórn­völd fyrir­skipuðu innköllun 482.000 frá bæði Volkswagen og dóttur­fyrirtækinu Audi. Bílarnir voru allir fram­leiddir á árunum 2009 til 2015. Um leið sögðust stjórn­völd vestra vilja sekta Volkswagen um hærri upphæð en sem nemur árshagnaði fyrir­tækisins, eða um 18 milljarða dala. Stjórn­endur fyrir­tækisins hafa sett 6,5 milljarða evra til hliðar til þess að borga skaða­bætur og kostnað vegna svindlsins. Auk þess þarf Volkswagen að standa straum af viðgerðum á þeim bílum sem hafa verið innkallaðir. Stjórn­endur fyrirtæksins báðust opinber­lega afsökunar á svindlinu.

Þeir eru víðar en bara í Banda­ríkjunum, meðal annars á Íslandi. Í tilkynningu frá Heklu, umboðs­aðila Volkswagen á Íslandi, sem send var út 30. september sagði að hugbúnaðurinn sem svindlaði á útblásturs­prófunum væri í 3.647 bílum hérlendis.

Svindlið hefur haft marg­vísleg önnur áhrif á Volkswagen. Það kostaði til að mynda Martin Winterkorn, forstjóra fyrir­tækisins, starfið og markaðs­virði félagsins hefur hrunið. Þá skilaði Volkswagen tapi á þriðja ársfjórðungi 2015 upp á tæpa 500 milljarða króna, en það var í fyrsta sinn í meira en 15 ár sem bíla­fram­leiðandinn skilaði rekstrar­tapi.

Opinberun á svindlinu hafði ekki stórkostleg áhrif á sölu Volkswagen bíla í október­mánuði. Nú hafa tölur um sölu á bílunum í Banda­ríkjunum í nóvember hins vegar verið birtar og ljóst að algjört hrun hefur orðið á sölu þeirra. Alls seldust næstum 25 prósent færri Volkswagen bílar í Banda­ríkjunum í nóvember 2015 en í sama mánuði árið áður. Þá seldust 31.725 slíkir bílar en nú 23.883. Mestur var samdrátturinn í sölu á Golf-bílum, sem dróst saman um 64 prósent, samkvæmt frétt The Verge um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár