Volkswagen-hneykslið: Snertir 3.647 bíla á Íslandi

Hugbúnaðurinn sem Volkswagen Group setti í hluta véla í dísel­bílum sem það fram­leiddi á árunum 2008 til 2015, og svindlaði á útblásturs­prófunum, er í 3.647 bílum á Íslandi. Þetta kemur fram i tilkynningu sem Hekla, umboðs­aðili Volkswagen á Íslandi, hefur sent frá sér. Um er að ræða 1129 Volkswagen fólksbíla, 348 Volkswagen atvinnu­bíla, 316 Audi bíla og 1854 Skoda bíla.

Hugbúnaðurinn felur að dísel-bílar bíla­fram­leiðandans losa um 40 sinnum meira af gróðurhúsa­loft­tegundum en leyft er.

Hægt er að lesa allt um hvað Volkswagen gerði rangt og hverjar afleiðingar þess eru í þessari frétta­skýringu Kjarnans.

Tilkynning Heklu:


"Eins og fram hefur komið vinnur Volkswagen Group að því að leysa vanda­mál við til­tek­inn hug­búnað sem not­aður er í ákveðnum dísil­vélum frá fyr­ir­tæk­inu, nánar til­tekið af gerð­inni EA 189. Rétt er að ítreka að öll öku­tæki sem þetta snertir eru full­kom­lega örugg til akst­urs. Málið varðar ein­göngu þær meng­andi loft­teg­undir sem los­aðar eru.

Bílarnir sem um ræðir eru fram­leiddir á árunum 2008 til 2015 og eingöngu er um að ræða dísil­vélar af gerðinni EA 189. Málið snertir ekki nýja bíla sem eru samkvæmt EU6 staðlinum, sem gildir um alla Evrópu, heldur eingöngu bíla með dísil­vélar af gerðinni EA 189.

Í dag bárust HEKLU, umboðs­aðila Volkswagen á Ísland, nýjar upplýsingar frá Volkswagen Group um málið, en þar kemur fram að heildar­fjöldi bíla á Íslandi sem málið snertir er 3647. Þar af eru 1129 Volkswagen fólks­bílar, 348 Volkswagen atvinnu­bílar, 316 Audi bílar og 1854 Skoda bílar.

Volkswagen Group leggur allt kapp á að finna lausn á málinu og hefur kynnt aðgerðar­áætlun sem felur í sér að Volkswagen og önnur merki samstæðunnar munu í október birta yfir­völdum tæknilegar lausnir og framkvæmd þeirra og leita samþykkis á þeim fyrir viðkomandi bílgerðir. Þegar þýsk yfirvöld hafa samþykkt tæknilegu lausnirnar munu þær verða útbúnar til innleiðingar innan alls EES svæðisins. Í kjölfarið verður haft samband við hvern og einn viðskiptavin sem málið snertir og hann upplýstur um hvernig hægt sé að bæta losunar­búnað bílsins.

Volkswagen Group hefur lýst yfir fullri ábyrgð á þeim tæknilegu lagfæringum sem grípa þarf til og þeim kostnaði sem af hlýst.

HEKLA hefur útbúið lista með spurningum og svörum sem liggja fyrir á þessari stundu sem hægt er að nálgast hér."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár