„Afsakið“ - Markaðsvirði Volkswagen hrynur

Stærsti bíla- og véla­fram­leið­andi heims­ins, þýska fyr­ir­tækið Volkswagen, glímir við mestu vanda­mál í sögu fyr­ir­tæk­is­ins eftir að yfir­völd í Banda­ríkj­unum gerðu fyr­ir­tæk­inu að inn­kalla 482 þús­und dísel­bíla sem komu á göt­una á árunum 2009 til 2015. Ekki nóg með það heldur var sett á stjórn­valds­sekti, sem umhverf­is­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna ákvað, sem nemur 37.500 Banda­ríkja­dölum á hvert til­vik þar sem ófull­nægj­andi bún­aður fannst. Í heild­ina er talið að Volkswagen þurfi að greiða átján millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 2.340 millj­örðum króna.

Högg fyrir hluthafa í dag


Það er lítið brot við hlið­ina á högg­inu sem hlut­hafar félags­ins hafa nú þegar þurft á taka á sig, en í dag hefur mark­aðsvirði félags­ins lækkað næstum 17 millj­arða dala, en mark­aðsvirði er í dag 65 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 8.500 millj­arða króna.

Tárvotur á fundi


Martin Winterkorn, þýskur for­stjóri Volkswagen, sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær, og las hana upp tár­votur á blaða­manna­fundi. „Afsakið“ sagði hann, og horfði síðan út í sal. Hann sagði við­skipta­vini og birgja fyr­ir­tæk­is­ins eiga skilið að fá afsök­un­ar­beiðni vegna þessa „galla" sem fund­ist hefði í hug­bún­aði í bílum fyr­ir­tæk­is­ins. Sá bún­aður stýrir afl­stýr­ingu í vél­inni, og reynd­ist ýta undir alltof mikla losun á nítrógen oxíði, eða um fjör­tíu­falt meiri losun en leyfi­legt er. Auk þess eru uppi ásak­anir um að fyr­ir­tækið hafa vís­vit­andi svindlað á próf­unum banda­rískra yfir­valda, en engar ákærur hafa verið gefnar út ennþá. Samkvæmt umfjöllun Quartz og BBC er ekki úti­lokað að það verði gert og eru það þá æðstu stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins sem þurfa að bera ábyrgð. Winterkorn fékk spurn­ingar frá blaða­mönn­unum á fund­inum, um hugs­an­legt glæp­sam­legt athæfi, en neit­aði að tjá sig um þær.

Volkswagen shares are down 20%. Here’s what we know so far about the emissions scandal: http://t.co/Y2FlLLHRlh pic.twitter.com/WJw9C0vCDy


— Wall Street Journal (@WSJ) Sept­em­ber 21, 2015


Margir Volkswagen bílar á Íslandi


Volkswagen hefur árum saman verið meðal stærstu sölu­að­ila bíla hér á landi, en umboðið er hjá Heklu. Fyr­ir­tækið hefur sagt í frétta­til­kynn­ingum að allir þeir sem eigi bíla sem settir voru á göt­una í Banda­ríkj­unum á árunum 2009 til 2015 eigi að leita til umboðs­að­ila til þess að fá svör við því hvort inn­köll­unin nái til bíls­ins þeirra, en ann­ars eigi eig­endur að fá skila­boð um inn­köllun frá fyr­ir­tæk­inu. Lang­flestir bíl­arnir eru á Banda­ríkja­mark­aði, svo ólík­legt er að margir af þeim bílum sem um ræðir séu á göt­unni utan Banda­ríkj­anna.

Sögulegt hrun


Höggið sem Volkswagen fékk á sig á mark­aði var að miklu leyti fyr­ir­sjá­an­legt, enda átján millj­arða Banda­ríkja­dala högg fyrir rekst­ur­inn gríð­ar­legt áfall. Raunar er þetta hrun þegar orðið sögu­legt, þar sem mark­aðsvirði stórs bíla­fram­leið­anda hefur ekki lækkað svo hratt og skarpt, frá því að fjár­mála- og hluta­bréfa­mark­aði féllu saman haustið 2008 og fram á byrjun árs 2009.

Í umfjöllun BBC, segir Richard Wescott, sér­fræði­blaða­maður um sam­göngu­mál, að allt bendi til þess að Volkswagen hafi í reynd verið að svindla, svo háþró­aður hafi bún­að­ur­inn verið sem átti að virka þannig að bíl­arnir kæmust í gegnum ströng öryggis­próf banda­rískra yfir­valda. Erfitt væri að ímynda sér þetta sem galla eða óvilja­verk, þó eng­inn loka­dómur liggi fyrir enn.

Uppgvöt­unin nú hefur ýtt við evr­ópskum yfir­völdum sem vilja athuga hvort aðrir bíla­fram­leið­endur eru að beita sömu aðferðum til að koma bílum í gegnum próf­anir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár