Winterkorn hættir sem forstjóri Volkswagen vegna svindlsins

Martin Winterkorn er hættur sem for­stjóri Volkswagen vegna útblást­urs­hneyksl­is­ins sem fyr­ir­tækið var staðið að í Banda­ríkj­unum á föstu­dag. Fyr­ir­tækið þýska hefur við­ur­kennt að hafa fram­leitt ell­efu milljón bíla sem voru for­rit­aðir til að svindla á mæl­ingum á útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Eins og Kjarninn greindi frá í morgun sat Winterkorn fund með stjórn fyr­ir­tæk­is­ins í dag þar sem hann var kraf­inn svara við því hvort hann hafi haft vit­neskju um svind­lið sem hefur, á aðeins tveimur dögum þurkað út meira en þriðj­ung af mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins, eða um 26 millj­arða evra við lokun mark­aða í gær.

Hekla, umboðs­að­ili Volkwagen á Íslandi, birti í dag yfir­lýs­ingu frá Volkswagen í Þýska­landi. Þar segir að Volkswagen vinni nú „hörðum höndum að því að greiða úr frá­vikum í til­teknum hug­bún­aði disil­véla“ en áréttað er að allar umræddar bif­reiðar séu öruggar og akst­urs­hæfar enda varðar málið aðeins útblástur meng­un­ar­efna. Fyr­ir­tækið seg­ist jafn­framt ætla að taka á sig allan þann kostnað sem fylgir úrræð­unum sem grípa þarf til. Ekki er hins vegar hægt að til­greina þær teg­undir og árgerðir sem um er að ræða, segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þá hefur hluta­bréfa­verð í evr­ópskum bíla­fram­leið­endum fallið með Volkswagen og talið er að þýskur efna­hagur muni láta á sjá, þegar frá líður. Volkswagen mun að öllum lík­indum þurfa að borga him­in­háar sektir bæði í Banda­ríkj­unum og Evrópu vegna þessa.

Fyr­ir­fram er talið að Matthias Müller, yfir­maður hjá dótt­ur­fé­lag­inu Porsche, muni taka við stöðu Winterkorn hjá Volkswagen. Winterkorn hefur verið for­stjóri síðan árið 2007, tveimur árum áður en Volkswagen hóf að selja bíla sem búnir voru svindl­kerf­inu.

Hvernig svindlaði Volkswagen eiginlega á prófinu?


Samkvæmt Umhverf­is­ráði Banda­ríkj­anna, og John German, emb­ætt­is­manns­ins sem komst að hinu sanna, þá vissi tölva bíls­ins hvenær verið væri að prófa bíl­inn og hvenær ekki. Svo þegar bílnum var stungið í sam­band til að reikna útblást­ur­inn minnk­aði hann sjálf­krafa. Um leið og bíll­inn var svo tek­inn úr sam­bandi 40 fald­að­ist los­unin svo skyndi­lega.


Ekki er víst hvernig Volkswagen ætlar að tækla vanda­málið; það má hugs­an­lega gera með hug­bún­að­ar­upp­færslu. Hjá bíla­blað­inu Consumer Reports, sem er virt meðal bíl­greina í Banda­ríkj­unum, benda menn á að bíl­arnir muni tapa eig­in­leikum sínum við lag­fær­ingu á vand­anum. „Það er mjög lík­legt að upp­færsla muni hafa áhrif á eyðslu og eig­in­leika bíls­ins,“ segir Jake Fisher, yfir­maður bíl­próf­ana hjá blað­inu. Litlir dísel­bílar geta kom­ist lang­leið­ina að eyðslu bens­ínknú­inna „hybrid“-bíla, svo það er kannski aug­ljóst hvers vegna við­skipta­vinir Volkswagen völdu þessa bíla.


The Guardian segir svo frá því í dag að sam­kvæmt grein­ingu þeirra á meng­un­inni sem Volkswagen kann að bera ábyrgð á hafi allir þessir 11 milljón bílar blásið nærri milljón tonnum af loft­meng­andi efnum út í and­rúms­loftið á hverju ári. Það sé um það bil jafn mikið og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá öllum orku­verum, bílum, iðn­aði og land­bún­aði á öllu Bret­landi.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár