Hvað gerði Volkswagen rangt og hverjar verða afleiðingarnar?

Á föstu­dag til­kynnti Umhverf­is­vernd­ar­ráð Banda­ríkj­anna að Volkswagen hafi búið bíla sína ólög­legum hug­bún­aði sem var til þess gerður að svindla á útblást­urs­próf­unum. Dísel-bílar bíla­fram­leið­and­ans losa þess vegna 40 sinnum meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en leyft er.

Banda­rísk stjórn­völd hafa fyr­ir­skipað inn­köllun 482.000 frá bæði Volkswagen og dótt­ur­fyr­ir­tæk­inu Audi. Bílarnir voru allir fram­leiddir á árunum 2009 til 2015. Um leið hafa stjórn­völd vestra sagst vilja sekta Volkswagen um 37.500 banda­ríkja­dali fyrir hvert til­vik. Sekt­ar­upp­hæðin getur þess vegna orðið gríð­ar­lega há eða um 18 millj­arðar Banda­ríkja­dalir; meira en árs­hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafa sett 6,5 millj­arða evra til hliðar til þess að borga skaða­bætur og kostnað vegna svindls­ins.

Hversu slæmt er ástandið?

The Guardian tók saman lyk­il­at­riði máls­ins í gær og spurði: Hversu slæmt er þetta fyrir Volkswagen? Svörin voru betri í gær en í dag. Við lokun mark­aða í gær hafði mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins fallið um 26 millj­arða evra, and­virði 3.700 millj­arða íslenskra króna, síðan hneykslið kom upp. Til sam­an­burðar var lands­fram­leiðsla Íslands 2014 1.989 millj­arðar króna.


Blaða­maður The Guardian reynir einnig að leggja mat á orð­spor fyr­ir­tæk­is­ins til lengri tíma. Það gæti tekið langan tíma að end­ur­reisa. Volkswagen hefur nefni­lega lagt mikla áherslu á slag orð eins og „hreint dísel“ og mark­að­sett bíla sína sem umhverf­is­vænan kost fyrir öku­menn.



Enn fremur virð­ist svind­lið ekki vera bundið við Banda­ríkin því ell­efu milljón bílar hafa verið seldir með þess­ari svindl­að­ferð um allan heim. Hjá Heklu, umboðs­að­ila Volkswagen á Íslandi, var fátt um svör þegar Kjarninn leit­aði þangað. Volkswagen-verk­smiðj­urnar hafa ein­fald­lega ekki haft sam­band eða gefið skýr­ingar á þessu.


Og hjá CNN hefur verið reynt að varpa ljósi á hversu alvar­legt þetta gæti reynst fyrir þýskan efna­hag. Þar er smíði gæða­bíla einn af lyk­il­þáttum góðs aorð­spors. Alls skipar bíla­út­flutn­ingur 20 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi Þjóð­verja og hjá Volkswagen, Audi og Porsche starfa 775.000 manns.


Um leið og hluta­bréfa­verð í Volkswagen hrundi féll verð hluta í öðrum evr­ópskum bíla­fram­leið­endum líka. Hið franska Peugeot hefur fallið um sjö pró­sent, BMW um fimm pró­sent og Daimler (eig­andi Mercedes-Benz) hefur fallið um 5 pró­sent. Aðeins eru nokkrir mán­uðir síðan sagt var frá því að Volkswagen-sam­steypan, með Audi og Porsche inn­an­borðs, seldi flesta bíla allra bíla­smiða í heim­inum og um leið velti fyr­ir­tækið Toyota úr sessi.

Hvernig svindlaði Volkswagen eiginlega á prófinu?

Samkvæmt Umhverf­is­ráði Banda­ríkj­anna, og John German, emb­ætt­is­manns­ins sem komst að hinu sanna, þá vissi tölva bíls­ins hvenær verið væri að prófa bíl­inn og hvenær ekki. Svo þegar bílnum var stungið í sam­band til að reikna útblást­ur­inn minnk­aði hann sjálf­krafa. Um leið og bíll­inn var svo tek­inn úr sam­bandi 40 fald­að­ist los­unin svo skyndi­lega.


Ekki er víst hvernig Volkswagen ætlar að tækla vanda­málið; það má hugs­an­lega gera með hug­bún­að­ar­upp­færslu. Hjá bíla­blað­inu Consumer Reports, sem er virt meðal bíl­greina í Banda­ríkj­unum, benda menn á að bíl­arnir muni tapa eig­in­leikum sínum við lag­fær­ingu á vand­anum. „Það er mjög lík­legt að upp­færsla muni hafa áhrif á eyðslu og eig­in­leika bíls­ins,“ segir Jake Fisher, yfir­maður bíl­próf­ana hjá blað­inu. Litlir dísel­bílar geta kom­ist lang­leið­ina að eyðslu bens­ínknú­inna „hybrid“-bíla, svo það er kannski aug­ljóst hvers vegna við­skipta­vinir Volkswagen völdu þessa bíla.




The Guardian segir svo frá því í dag að sam­kvæmt grein­ingu þeirra á meng­un­inni sem Volkswagen kann að bera ábyrgð á hafi allir þessir 11 milljón bílar blásið nærri milljón tonnum af loft­meng­andi efnum út í and­rúms­loftið á hverju ári. Það sé um það bil jafn mikið og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá öllum orku­verum, bílum, iðn­aði og land­bún­aði á öllu Bret­landi.

Hvað svo?

Volkswagen hefur svarað þessu hneyksli með nokkrum yfir­lýs­ingum síð­ustu daga. For­stjór­inn Martin Winterkorn, baðst per­sónu­lega inni­lega afsök­unar á mál­inu þegar hann las yfir­lýs­ingu sína tár­votur á sunnu­dag. Þar kall­aði hann útfærslu hug­bún­að­ar­ins „galla“. Yfir­maður Volkswagen í Norður-Ameríku, Michael Horn, sagði svo á mánu­dag að þeir hefðu „alger­lega klúðrað þessu“. Um leið við­ur­kenndi hann að fyr­ir­tækið hefði verið óheið­ar­legt gagn­vart banda­rískum yfir­völdum og almenn­ingi með því að eiga við hug­bún­að­inn til að falsa útblást­urs­gögn.


Í morgun var svo haldin krísufundur í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins þar sem Winterkorn sat fyrir svörum. Þar er for­stjór­inn sagður vera í afar þröngri stöðu og erlendir fjöl­miðlar full­yrða að hann verði „grill­aður“ þar til stjórn­ar­menn verði sann­færðir um hvort for­stjór­inn sé að ljúga eða ekki.


Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum hafa þegar sagst ætla að hefja opin­bera rann­sókn á mál­inu. Á mánu­dag sagð­ist banda­ríska þingið ætla að setja saman rann­sókn­ar­nefnd um málið. Úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu vestra hefur jafn­framt heyrst að glæpa­rann­sókn verði gerð á þessum svikum Volkswagen. Þá eru stjórn­völd í Þýska­landi og Suður Kóreu að rann­saka málið.


Nokkrar laga­skrif­stofur hafa þegar hafið hóp­mál­sókn á hendur Volkswagen. Robert Clifford hjá Clifford Law í Chicago fer fyrir einni af stærstu mál­sókn­inni en hann segir við­skipta­vini bíla­fram­leið­and­ans hafa orðið fyrir gríð­ar­legu tjóni og að þeir hafi alls ekki fengið það sem þeir voru að kaupa.


Á meðan þessi stormur ríður yfir Volkswagen hafa sögu­sagnir flogið um að for­stjór­inn Martin Winterkorn verði lát­inn fara strax á föstu­dag­inn og að Matthias Müller, yfir­maður hjá dótt­ur­fé­lag­inu Porsche, verði ráð­inn í hans stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár